Fara í efni  

Menningar- og safnanefnd

145. fundur 14. maí 2025 kl. 16:30 - 19:10 í Klöpp á Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Guðríður Sigurjónsdóttir formaður
  • Ella María Gunnarsdóttir varaformaður
  • Einar Örn Guðnason aðalmaður
  • Martha Lind Róbertsdóttir aðalmaður
  • Jóhannes Geir Guðnason aðalmaður
Starfsmenn
  • Vera Líndal Guðnadóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Vera Líndal Guðnadóttir Verkefnastjóri menningar- og safnamála
Dagskrá
Hjörvar Gunnarsson viðburðastjóri tekur sæti á fundinum.

1.Sjómannadagurinn 2025

2505091

Verkefnastjóri menningarmála og viðburðastjóri fara yfir hátíðarhöld Sjómannadagsins á Akranesi.
Menningar- og safnanefnd þakkar verkefnastjóra og viðburðastjóra fyrir fína yfirferð á dagskrá Sjómannadagsins á Akranesi. Hvetjum bæjarbúa til þess að fylgjast vel með á næstu dögum þegar hún verður kynnt á www.akranes.is og taka þátt í hátíðarhöldunum þann 1. júní.

2.17 júní þjóðhátíðardagur 2025

2503134

Viðburðastjórar fara yfir dagskrá Þjóðhátíðardagsins 17. júní 2025.
Menningar- og safnanefnd þakkar viðburðastjóra fyrir yfirferð á væntanlegum hátíðarhöldum þann 17. júní, dagskráin verður fjölbreytt að vanda og verður hún birt á www.akranes.is - Hvetjum öll til að taka þátt.
Hjörvar Gunnarsson víkur af fundi.

3.Verkefnastaða Byggðasafnsins í Görðum Q2 2025

2505115

Sýningastjóri BÍG sendir inn minnisblað fyrir apríl mánuð
Menningar- og safnanefnd þakka sýningarstjóra fyrir minnisblað um stöðu mála.

4.Sinfóníuhljómsveit Íslands og kórar á Vesturlandi - Akranes 2026

2505116

Verkefnastjóri kynnir fyrir menningar- og safnanefnd heimsókn Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Akranes 2026.
Menningar- og safnanefnd þakkar verkefnastjóra fyrir kynningu á þessu frábæra verkefni og bíða spennt eftir því að heyra meira.
Fulltrúar ungmennaráðs Arndís Elfa Pálsdóttir, Sandra Björk Freysdóttir og Sigurður Brynjarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

5.Menningarstefna Akraneskaupstaðar undirbúningur 2025

2505093

Menningar- og safnanefnd boða ungmennaráð Akraneskaupstaðar á fund til sín þar sem farið verður yfir menningarstefnu og þeim gefið færi á því að koma með athugasemdir.



Fulltrúar ungmennaráðs eru þau Arndís Elfa Pálsdóttir, Sandra Björk Freysdóttir og Sigurður Brynjarsson.
Menningar- og safnanefnd þakkar ungmennaráði Akraneskaupstaðar fyrir gagnlegt samtal um menningarstefnu Akraneskaupstaðar. Nefndin mun taka til greina þeirra endurgjöf og felur verkefnastjóra að koma því í ferli.
Arndís Elfa Pálsdóttir, Sandra Björk Freysdóttir og Sigurður Brynjarsson víkja af fundi.

6.Menningarstefna Akraneskaupstaðar undirbúningur 2025

2505093

Menningar- og safnanefnd vinnur Menningarstefnu Akraneskaupstaðar 2025-2028

7.Bæjarlistamaður Akraness 2025

2505077

Menningar- og safnanefnd óskar eftir tilnefningum til Bæjarlistamanns árið 2025, hægt er að senda inn tillögur til og með 23. maí 2025
Menningar- og safnanefnd hvetur bæjarbúa til að senda inn tillögu um bæjarlistamann fyrir árið 2025. Nánari upplýsingar og form fyrir tilnefningar má finna á www.akranes.is.

Fundi slitið - kl. 19:10.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00