Fara í efni  

Framkvæmdastjórn Byggðasafns Akraness og nærsveita (2001-2006)

16. fundur 26. ágúst 2003 kl. 20:00 - 22:00

FRAMKVÆMDASTJÓRN BYGGÐASAFNS AKRANESS OG NÆRSVEITA

Ár 2003, þriðjudaginn 26. ágúst kom framkvæmdanefnd Byggðasafns Akraness og nærsveita saman til fundar á safninu að Görðum.


Til fundarins komu: Sveinn Kristinsson og Jósef H. Þorgeirsson.  Auk þeirra sat Jón Allansson fundinn.


Þetta gerðist á fundinum:

 

1. Almennt varðandi safnið.

Aðsókn hefur verið góð að söfnunum og má áætla að 20 þúsund manns hafi komið frá áramótum.
?Viðburðaveisla á Akranesi? hefur tekist vel og á sinn þátt í aukinni aðsókn og hefur mælst vel fyrir.

 

2. Lagt fram rekstraryfirlit miðað við 20. ágúst s.l. og það rætt ítarlega.  Frekari upplýsingar verða lagðar fyrir næsta stjórnarfund.

 

3. Áætluðum framkvæmdum á svæðinu utan dyra er öllum lokið.

 

4. Starfsemi í Fróðá er komin á góðan rekspöl.

 

5. Innréttuð hefur verið smíðaaðstaða í viðbyggingu við Sandahúsið.

 

6. Upplýst að safnið á kost á að fá stúkuhúsið flutt á safnasvæðið og er það verkefni á næstu árum.

 

7. Von er á sérfræðingum frá Skotlandi og Flæreyjum um næstu helgi til athugunar á Kútter Sigurfara.

 

 Fleira ekki gert, fundi slitið.

 Jósef H. Þorgeirsson (sign)
 Jón Allansson (sign)
 Sveinn Kristinsson (sign)


 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00