Fara í efni  

Framkvæmdaráð (2009-2014)

47. fundur 02. nóvember 2010 kl. 17:00 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Fundargerð ritaði: Jón Pálmi Pálsson framkvæmdastjóri
Dagskrá

1.Hundahald - breyting á samþykkt 2010

1001064

Viðræður við Helga Helgason framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Vesturlands um fyrirkomulag dýraeftirlits.
Framkvæmdastóri framkvæmdastofu kynnti drög að erindisbréfi fyrir dýraeftirlitsmann og drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2011.

Framkvæmdastjóri HEV gerði grein fyrir þeirri skoðun sinni að samþykktirnar um hunda-og kattahald stæðust ekki reglur. Framkvæmdaráð óskar eftir því að framkvæmdatjóri og bæjarstjóri skoði málið frekar. Erindisbréf og fjárhagáætlun lagt fram.

2.Hundahald - breyting á samþykkt 2010

1001064

Tillaga HEV á reglum sbr nýjar samþykktir um hundahald í þeim tilfellum sem umsóknir eru um að halda fleiri hunda en tvo. Við leyfisveitingu þarf m.a. að hafa í huga mismunandi rýmisþarfir fyrir hunda, gæta að lágmarksstærð vistarvera bæði úti og inni og fl. Fyrir liggur jákvæð umsögn félags hundaeigenda á Akranesi á þessum skilyrðum.

Framkvæmdaráð ítrekar beiðni sína um formlega umsögn um reglurnar.

3.Rekstur Akranesvallar og -hallar og æfingasvæðis að Jaðarsbökkum.

1010008

Bréf Knattspyrnufélags ÍA dags. 30.09.2010, þar sem óskað er eftir viðræðum við Akraneskaupstað, hvort áhugi væri á því að ganga til samninga við KFÍA um að félagið annist rekstur Akranesvallar og Akraneshallar.
Viðræður við rekstrarstjóra íþróttamannvirkja Hörð Jóhannesson.

Rekstrarstjóri fór yfir málið og kynnti rekstrarsamninga sem hafa verið gerðir við félög á höfuðborgarsvæðinu. Rekstrarstjóri mun senda framkvæmdaráði frekari gögn.

4.Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar og stofnana árið 2011

1009156

Bréf framkvæmdastjóra Framkvæmdastofu dags. 14. október 2010 þar sem gerð er tillaga um heildarfjárhæð til almenns viðhalds, fjárhæðar til sértæks viðhalds vegna skólaeldhúss Grundaskóla svo og viðhaldsátaki gatna. Frumdrög viðhaldsáætlunar stofnana kynnt, en skilgreind viðhaldsverkefni stofnana sem nú þegar liggja fyrir (án forgangsröðunar) nema samtals fjárhæð um 286 milljónum króna.

Framkvæmdaráð tekur undir tillögu framkvæmdastjóra um viðmiðunarfjárhæðir til viðhaldsmála og beinir því til bæjarráðs og bæjarstjórnar að þeim fjárhæðum verði viðkomið í fjárhagsáætlun ársins 2011. Framkvæmdaráð bendir sérstaklega á hagkvæmni þess að viðhalda mannvirkjum bæjarins í ljósi þess að það virðisaukaskattur er endurgreiddur af vinnu iðnaðarmanna auk þess sem það er jákvætt fyrir atvinnulíf í bænum.

5.Bíóhöllin - endurbætur

901158

Minnisblað verkefnastjóra dags. 2. nóvember 2010 varðandi uppgjör verksins "Klæðning Bíóhallar utanhúss". Heildarkostnaður við verkið var um 20,7 m. kr. nettó þegar tillit hefur verið tekið til endurgreiðslu vsk af vinnuliðum. Samningur við verktaka var kr. 18,2 m.kr. og kom einnig til nokkur aukaverk við þakkant og rafmagn. Fjárveiting til verksins var 23 m.kr.

Framkvæmdaráð lýsir yfir ánægju sinni með vel heppnað og framkvæmt verk.

6.Íþróttahúsið Vesturgötu/Bjarnalaug

1009161

Bréf bæjarstjórnar dags. 27. október 2010, þar sem tilkynnt er um samþykkt aukafjárveitingar að fjárhæð 464 þús. kr. til kaupa á búnaði vegna kennslu í Bjarnalaug og íþróttahúsinu við Vesturgötu.

Lagt fram.

7.Íþróttamannvirki - aðstöðumál ÍA

1008087

Bréf bæjarstjórnar dags. 27. október 2010, þar sem tilkynnt er um aukafjárveitingu að fjárhæð kr. 1,4 m.kr. vegna kostnaðar við loftræsingu í æfingasölum íþróttahússins Vesturgötu.

Framkvæmdastofu falið að hrinda verkunum í framhald.

8.Íþróttahúsið við Vesturgötu og Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - búnaður.

908019

Umræða hefur komið upp um kaup á hjartastörturum fyrir íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar, en skv öryggisreglum fyrir íþróttamannvirki er slíkur búnaður ekki staðalbúnaður í slíkum stofnunum. Kostnaður við kaup á slíkum búnaði er frá liðlega 200 þúsund krónum fyrir hvert tæki.

Framkvæmdaráð samþykkir að vísa málinu til bæjaráðs til umfjöllunar og leggur til að veitt verði fjárveiting til umræddra búnaðarkaupa í fjárhagsáætlun ársins 2011. Jafnframt telur framkvæmdaráð æskilegt að leitað verði álits fagaðila um staðsetningu og nauðsyn slíkra tækja í mannvirkjum bæjarins.

9.Leynislækjarflöt - skipulag svæðisins.

1010012

Erindi bæjarráðs dags. 29. október þar sem samþykkt er að fela Framkvæmdastofu að vinna tillögur að útfærslu á skipulagi svæðisins og þær hugmyndir mótaðar í sem bestu samstarfi við íbúa og skipulags- og umhverfisnefnd.
Samþykktin er í á grundvelli erindis frá íbúum við Leynisbraut og Víðigrund varðandi skipulag á opnu svæði milli Leynislækjar og Víðigrundar.
Skipulags- og umhverfisnefnd hefur einnig fjallað um málið og lýsir yfir ánægju sinni með þann áhuga sem íbúar við Leynisbraut og Víðigrund hafa fyrir nánasta umhverfi sínu eins og fram kemur í erindi þeirra og vilja til að stuðla að framgangi verkefnisins með sjálfboðaliðavinnu.
Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að í gildandi deiliskipulagi er svæðið skilgreint sem opið svæði ? leiksvæði þannig að ekki er þörf á að að gera breytingar á gildandi skipulagi svo unnt sé að hrinda hugmyndum íbúanna í framkvæmd.



Framkvæmdaráð samþykkir að fela Framkvæmdastofu að vinna að verkefninu í samræmi við fyrirliggjandi hugmyndir.

Fundi slitið.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00