Fara í efni  

Fjölskylduráð (2009-2014)

119. fundur 18. júní 2013 kl. 16:30 - 18:40 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Þröstur Þór Ólafsson formaður
  • Dagný Jónsdóttir varaformaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Einar Brandsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helga Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Fjölskyldustofu
  • Svala Kristín Hreinsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Svala Hreinsdóttir verkefnisstjóri
Dagskrá

1.Innritun í leikskóla 2013

1303012

Lagt fram minnisblað frá verkefnisstjóra um stöðu innritunar vor/sumar 2013.

Á fundinn mættu Ingunn Ríkharðsdóttir leikskólastjóri í Garðaseli áheyrnafulltrúi skólastjórnenda, Rósa Guðnadóttir áheyrnafulltri foreldra og Árný Örnólfsdóttir áheyrnafulltri starfsmanna. Foreldrar allra barna 2ja ára og eldri með lögheimili á Akranesi geta óskað eftir innritun í leikskóla. Innritun í leikskóla fer fram í samstarfi við leikskólastjóra og foreldra. Nokkuð hefur verið um að fjölskyldufólk er að flytja til og frá Akranesi.

2.Starfsemi leikskóla sumarið 2013

1303011

Við gerð fjárhagsáætlunar 2013 var ákveðið að þrír af fjórum leikskólum á Akranesi verði lokaðir í 5 vikur á komandi sumri. Leikskólarnir verða lokaðir frá 1. júlí til og með 5. ágúst. Starfsemi verður í leikskólanum Garðaseli fyrstu vikuna í júlí en það var eina vikan sem uppfylti lágmarks þátttöku barna. Ingunn fór yfir skipulag þeirrar starfsemi sem mun fara fram í leikskólanum Garðaseli.

3.Mótun skólastefnu

1201103

Unnið hefur verið að mótun skólastefnu Akraneskaupstaðar. Stefnan hefur verið í umsagnarferli hjá hagsmunaaðilum en liggur nú liggur nú fyrir og er lögð fram til kynningar hjá fjölskylduráði.

Á fundinn mættu kl. 17:05 Hrönn Ríkharsdóttir skólastjóri Grundaskóla, Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri Brekkubæjarskóla, Elísabet Ingadóttir fulltrúi foreldra-Skagaforeldra og Elís Þór Sigurðsson fulltrúi starfsmanna.

Fjölskylduráð leggur til að stefnan verði í umsagnarferli á heimasíðu Akraneskaupstaðar í júlímánuði og lögð fyrir bæjarstjórn í lok ágúst.

4.Mótun lýðheilsustefnu

1209111

Unnið hefur verið að mótun velferðarstefnu fyrir Akraneskaupstaðar. Stefnan hefur verið í umsagnarferli hjá hagsmunaaðilum en liggur nú liggur nú fyrir og er lögð fram til kynningar hjá fjölskylduráði.

Stefnan verður send til umsagnar hjá hagsmunaaðilum. Fjölskylduráð leggur til að stefnan verði einnig í umsagnarferli á heimasíðu Akraneskaupstaðar í júlímánuði og lögð fyrir bæjarstjórn í lok ágúst.

5.Beiðni um grunnskólavist

1303120

Afgreiðsla trúnaðarmál.

Ingunn, Rósa og Árný viku af fundi kl. 17:46.

6.Skóladagatal 2013-2014

1303204

Fjölskylduráð hefur áður fjallað um skóladagatal en það hefur ekki tekið breytingum í umsagnarferlinu.

Fjölskylduráð samþykktir skóladagatal 2013-2014 fyrir sitt leyti. Skólastjórar beggja grunnskóla óska eftir að útskrift úr 10. bekk fari fram 5. júní 2014. Fjölskylduráð telur ekkert því til fyrirstöðu.

7.Ytra mat á grunnskólum - Brekkubæjarskóli

1302117

Í april fór fram ytra mat í Brekkubæjarskóla á vegum Námsmatsstofnunar. Niðurstöður voru kynntar fyrir starfsmönnum skólans í lok maí. Helstu niðurstöður voru einnig sendar foreldrum og nemendum.

Í lokaorðum upplýsingabréfs til foreldra segir eftirfarandi;

Brekkubæjarskóli starfar á farsælan hátt í anda stefnu sinnar með dygðir að leiðarljósi sem birtast í námi og starfi.

Í framhaldi þessa mats verður matsskýrsla send skólanum og sveitarstjórn þar sem fram koma nánari niðurstöður ytra matsins. Skýrslan verður aðgengileg á heimasíðu ráðuneytis og Námsmatsstofnunar. Skóli og sveitarstjórn setja í framhaldi matsins fram áætlun um þær umbætur sem lagðar eru til og ráðuneytið fylgist síðan með að þeim sé framfylgt.

Fjölskylduráð fagnar niðurstöðu ytra mats á vegum Námsmatsstofnunar í Brekkubæjarskóla.

8.Verklagsreglur varðandi nemendamál í grunnskólum

1303137

Fjölskylduráð fékk fyrirliggjandi drög til kynningar á fundi sínum 2. apríl. Í framhaldi af kynningunni voru reglurnar sendar til umsagnar til grunnskóla, sérfræðiþjónustu skóla og starfsfólks barnaverndar

Fjölskylduráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti en vísar reglunum til umsagnar í barnaverndarnefnd Akraneskaupstaðar. Fjölskylduráð telur að leggja beri mat á reglurnar þegar eins árs reynsla er komin á notagildi þeirra.

9.Sérdeild - starfsmannamál 2013-2014

1306101

Bréf frá Arnbjörgu Stefánsdóttur skólastjóra Brekkubæjarskóla var lagt fram þar sem óskað er eftir viðbótar ráðningu um 1.5% stöðugildi stuðningsfulltrúa og 1 stöðugildi kennara við sérdeildina vegna aukninga á nemendafjölda á næsta skólaári. Fjölskylduráð tekur vel í erindið en vísar því til afgreiðslu í bæjarráði.

Hrönn, Arnbjörg, Elísabet og Elís Þór viku af fundi kl. 18:34.

10.Uppsögn á starfi

1306021

Ólöf Guðmundsdóttir forstöðumaður sambýlisins við Vesturgötu hefur verið í ársleyfi frá störfum. Ólöf hefur nú sagt starfi sínu lausu.

Fjölskylduráð þakkar Ólöfu fyrir farsæl störf í þágu Akraneskaupstaðar og óskar henni velfarnaðar í nýju starfi.

Fundi slitið - kl. 18:40.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00