Fara í efni  

Félagsmálaráð (2002-2008)

744. fundur 29. október 2007 kl. 16:00 - 17:20

744. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu ráðgjafadeildar,

Stillholti 16-18, mánud. 29.okt. 2007 og hófst hann kl. 16:00.

______________________________________________________

 

Mættir voru:                   Magnús Þór Hafsteinsson, formaður

                                      Tryggvi Bjarnason

                                      Margrét Þóra Jónsdóttir
                                      Anna Lára Steindal
             

Auk þeirra Ingibjörg Gunnarsdóttir, yfirfélagsráðgjafi og Sveinborg Kristjánsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, sem ritaði fundargerð. Fundargerð síðasta fundar lesin og samþykkt.

 _____________________________________________________________

 

 

Fundur settur af formanni.

Fyrir tekið:

1.   Fjárhagsaðstoð
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.

2.   Barnavernd
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.

3.   Framkvæmdaráætlun í barnaverndarmálum
Í 19. gr. Barnaverndarlaga er mælt fyrir um skyldu sveitarfélaga til að marka stefnu og framkvæmdaáætlun í barnavernarmálum fyrir hvert kjörtímabil.
Félagsmálaráð óskar eftir samþykki bæjarráðs um að skipað verði í vinnuhóp til að vinna að gerð framkvæmdaáætlunar í barnaverndarmálum.  Í vinnuhópnum verða Tryggvi Bjarnason, Margrét Þóra Jónsdóttir og Ingibjörg Gunnarsdóttir.

4.   Stefna Akraneskaupstaðar í málefnum erlendra íbúa
Það er skylda sveitarfélaga að marka sér stefnu í málefnum erlendra íbúa. Félagsmálaráð óskar eftir samþykki bæjarráðs um að skipað verði í vinnuhóp til að vinna að gerð stefnu um málefni erlendra íbúa á Akranesi. Vinnuhópinn skipa Anna Lára Steindal, Magnús Þór Hafsteinsson og Sveinborg Kristjánsdóttir.



Fundi slitið kl. 17:20

 

 

 

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00