Fara í efni  

Félagsmálaráð (2002-2008)

646. fundur 18. júní 2003 kl. 16:00 - 17:15

646. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu ráðgjafadeildar,
Stillholti 16-18, þriðjud. 18. júní  2003 og hófst hann kl.16:00.


Mættir voru: Ágústa Friðriksdóttir
 Margrét Þóra Jónsdóttir
 Sigurður Arnar Sigurðsson
 Sigurveig Stefánsdóttir

Auk þeirra Sólveig Reynisdóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs sem ritaði fundargerð. Trúnaðarbók ritaði Sigurður Arnar Sigurðsson.


Fundur settur af formanni.

Fyrir tekið:

 

1. Fjárhagsaðstoð
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók


2. Barnavernd

3. Viðbótarlán
Endurskoðun á hámarksverði íbúða við veitingu viðbótarlána.

Stærð fjölskyldu: Hámarksverð var: 

 Hámarksverð verður:

Einstaklingur  7.350.000-  8.000.000-
Tveir  8.350.000-  9.000.000-
Þrír  9.450.000-  10.300.000-
Fjórir 10.450.000-  11.300.000-
Fimm eða fleiri  11.650.000-  12.700.000-


Úthlutað var sex viðbótarlánum samtals að upphæð kr. 11.320.000.-

 

Félagsmálaráð óskar eftir því við bæjarráð að sótt verði um viðbótarlán að upphæð kr.50.000.000.- til Íbúðalánasjóðs í ljósi þess að ca. 70% af viðbótarlánum ársins 2003 er þegar úthlutað.

 

4. Leiguíbúðir
Samþykkt að úthluta Þóru Gunnarsdóttur leiguíbúð að Skarðsbraut 9

 

5. Bréf Tryggingarstofnunar ríkisins dags. 3. júní 2003 varðandi greiðslur á lífeyri vegna fósturbarna.
Erindið kynnt.

6. Bréf Barnaverndarstofu dags. 2. júní 2003 varðandi sumardvalir á vegum barnaverndarnefnda.
Erindið kynnt.

 
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:15

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00