Fara í efni  

Félagsmálaráð (2002-2008)

638. fundur 18. febrúar 2003 kl. 16:00 - 18:00

638. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu fjölskyldusviðs,
Stillholti 16-18, þriðjud. 18. febrúar  2003 og hófst hann kl.16:00.

_____________________________________________________________

Mættir voru: Ágústa Friðriksdóttir
 Margrét Þóra Jónsdóttir
 Tryggvi Bjarnason,
 Sigurður Arnar Sigurðsson.

Auk þeirra Sólveig Reynisdóttir félagsmálastjóri og Sveinborg Kristjánsdóttir félagsráðgjafi sem ritaði fundargerð. Trúnaðarbók ritaði Sigurður Arnar Sigurðsson.

____________________________________________________________

Fundur settur af formanni.

Fyrir tekið:

1. Fjárhagsaðstoð
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.

2. Barnavernd
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.

3. Viðbótarlán
Úthlutað var tíu viðbótarlánum að upphæð kr. 16.493.000,-.

4. Kaup á leiguíbúð
Lagt fram bréf bæjarritara dags. 18.12.02. Félagsmálaráð leggur til að félagsleg eignaríbúð að Einigrund 6, 02.04 verði gerð að félagslegri leiguíbúð.

5. Niðurgreiðslur til dagmæðra
Samþykkt drög að reglum um niðurgreiðslur Akraneskaupstaðar vegna daggæslu barna í heimahúsum.

6. Málþing Félags íslenskra uppeldis- og meðferðarstofnana fyrir börn og unglinga.
Lagt fram bréf bæjarritara dags. 14.02.03. Málið kynnt.

    
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:00

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00