Fara í efni  

Bæjarstjórn

1185. fundur 11. mars 2014 kl. 17:00 - 18:00 í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Sveinn Kristinsson forseti bæjarstjórnar
  • Gunnar Sigurðsson aðalmaður
  • Guðmundur Páll Jónsson aðalmaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Þröstur Þór Ólafsson aðalmaður
  • Einar Brandsson aðalmaður
  • Dagný Jónsdóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björnsdóttir aðalmaður
  • Einar Benediktsson aðalmaður
  • Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson framkvæmdastjóri
Dagskrá
Forseti stýrði fundi og bauð fundarmenn velkomna til fundar.

1.Aðalskipulagsbreyting - Kirkjuhvoll (Merkigerði 7) og Vesturgata 101.

1312129

Erindi skipulags- og umhverfisnefndar dags. 4.3.2014, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að breyting á aðalskipulagi vegna lóða Vesturgötu 102 og Merkigerði 7 (Kirkjuhvoll) verði samþykkt og sent Skipulagsstofnun til umsagnar og fengin heimild til auglýsingar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2014, vegna lóðanna að Merkigerði 7 (Kirkjuhvoll) og Vesturgötu 102 (sambýli) samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Áður en auglýst er, skal senda Skipulagsstofnun aðalskipulagsbreytinguna til athugunar sbr. 3. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Til máls tóku: GS og RÁ.

Samþykkt 9:0.

2.Aðalskipulagsbreyting vegna Þjóðvegar 15/15A, hitaveitugeymir OR.

1402170

Erindi skipulags- og umhverfisnefndar dags. 4.3.2014, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna lóða við Þjóðveg 15/15A verði samþykkt og sent Skipulagsstofnun til umsagnar og fengin heimild til auglýsingar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 vegna lóðanna á Þjóðvegi 15 / 15A samkvæmt 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Áður en auglýst er, skal senda Skipulagsstofnun aðalskipulagsbreytinguna til athugunar sbr. 3. mgr. 30 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Til máls tók: GS.

Samþykkt 9:0.

3.Deiliskipulag, Miðvogslækjarsvæði, Þjóðvegur 15/15A.

1402171

Erindi skipulags- og umhverfisnefndar þar sem lagt er til við bæjarstjórn að deiliskipulag vegna lóða við Þjóðveg 15/15A á Miðvogslækjarsvæði verði auglýst samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið verður auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu vegna lóða Þjóðvegar 15/15A.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að auglýsa deiliskipulag á Þjóðvegi 15 /15A samkvæmt 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið skal auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi að Þjóðvegi 15 /15A.

Samþykkt 9:0.

4.Fundargerðir 2014 - bæjarstjórn.

1401184

Fundargerð bæjarstjórnar nr. 1184 frá 25.2.2014.

Samþykkt 9:0.

5.Fundargerðir 2014 - bæjarráð.

1401158

Fundargerð bæjarráðs nr. 3212 frá 27.2.2014.

Lögð fram.

Til máls um lið 14. tók IV

TIl máls um lið 1, lið 11, lið 12 og lið 14 tók EBr.

Einar Brandsson leggur fram eftirfarandi tillögu:

"Í framhaldi af því að rekstraraðili tjaldsvæðisins hefur sagt upp samningi sínum við Akraneskaupstað leggur undirritaður til að Umhverfis- og framkvæmdasvið bjóði reksturinn út að nýju og útboðsgögnin frá síðasta ári verði notuð við það útboð."

"Greinargerð:

Undirritaður telur þá hugmynd um að fela væntanlegum ferðamálafulltrúa að annast rekstur tjaldsvæðisins skref til baka í uppbyggingu ferðaþjónustu á Akranesi. Í mínum huga er ljóst að umsjón með tjaldsvæðinu muna annað hvort taka allan tíma væntanlegs ferðamálafulltrúa þá mánuði sem tjaldsvæðið er opið eða þá að ráða verður starfsmenn sérstaklega til að sinna umsjón með tjaldsvæðinu. Ég tel að reynsla undanfarinna ára hafi sýnt að rekstur tjaldsvæðisins er betur kominn í höndunum á einkaaðila, sem á a.m.k. hluta afkomu sinnar undir því hvernig tekst til, heldur en að bæjarfélagið hafi með þennan rekstur að gera."

Um tillöguna tóku til máls: IV, ÞÞÓ, GB, GPJ, RÁ, IV, EBr, ÞÞÓ, GS.

Tillagan borinn upp. Samþykkt 1 (EBr), á móti 6 (ÞÞÓ, GB, IV, EBe, GPJ og DJ).

Sitja hjá 2 (SK og GS).

Tillagan felld.

6.Fundargerðir 2014 - skipulags- og umhverfisnefnd.

1401161

Fundargerðir skipulags- og umhverfisnefndar nr. 107 og 108 frá 17.2.2014 og 3.3.2014.

Lagðar fram.

7.Fundargerðir 2014 - fjölskylduráðs.

1401159

Fundargerð fjölskylduráðs nr. 135 frá 4.3.2014.

Lögð fram.

Til máls um lið 4 tók GB.

Til máls um fundargerðina almennt tók IV.

Til máls um lið 1 tók ÞÞÓ.

Fundi slitið - kl. 18:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00