Fara í efni  

Bæjarstjórn

1133. fundur 11. október 2011 kl. 17:00 - 19:15 í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Sveinn Kristinsson forseti bæjarstjórnar
  • Gunnar Sigurðsson aðalmaður
  • Guðmundur Páll Jónsson aðalmaður
  • Hrönn Ríkharðsdóttir aðalmaður
  • Þröstur Þór Ólafsson aðalmaður
  • Einar Brandsson aðalmaður
  • Dagný Jónsdóttir aðalmaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Einar Benediktsson aðalmaður
  • Árni Múli Jónasson bæjarstjóri
  • Jón Pálmi Pálsson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Jón Pálmi Pálsson bæjarritari
Dagskrá
Forseti óskaði heimildar til að taka inn á dagskrá fundarins lið 12 í fundargerð bæjarráðs frá 29.9.2011, starfsmannamál Brekkubæjarskóla, beiðni um fjárveitingu vegna námskeiðs.
Samþykkt 9:0.

1.Starfsmannamál Brekkubæjarskóla

1010199

Erindi bæjarráðs frá 29. september s.l. þar sem tekið var fyrir ósk starfsmanna- og gæðastjóra um fjárheimild vegna námskeiðahalds að upphæð 212 þús. kr. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt og fjárveitingu vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2011.

Bæjarráð samþykkir tillöguna 9:0.

2.Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011.

1101181

Samþykkt bæjarráðs dags. 6. október 2011 um breytingar á fjárhagsáætlun janúar - september 2011 er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Tillagan gerir ráð fyrir hækkun tekna sem nemur 110,5 m.kr. og útgjöldum sem nemur 134,5 m.kr. Lækkun á haldbæru fé er áætlað 8,7 m.kr.

Til máls tóku: IV, GS, SK, GPJ.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna 9:0.

3.Gjaldskrár Fjölskyldustofu

1006101

Samþykkt bæjarráðs dags. 6. október 2011 um hækkun fæðisgjalda í leik- og grunnskóla, svo og frístundaklúbbi Þorpsins um 7,5% frá og með 1. nóvember 2011. Umfjöllun og afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir hækkunina 9:0.

4.Sólmundarhöfði 7 - þjónustu- og öryggisíbúðir

1109148

Drög að viljayfirlýsingu og samkomulag við Reginn Í1 ehf um samstarf vegna byggingar íbúðarhúss að Sólmundarhöfða 7 og leigu Akraneskaupstaðar á allt að 7 íbúðum í fjölbýlishúsinu í allt að 7 ár. Heildarskulbinding Akraneskaupstaðar vegna leigu íbúðanna verði á bilinu 90 - 95 m.kr.
Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsinguna og samkomulagið um samstarf fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarstjórnar.

Til máls tóku: E.Br, HR, SK, E.Ben, E.Br, GPJ, GS, ÞÓ, SK, E.Br, SK, GS, GPJ, SK, E.Br.

E.Br. lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Fyrir bæjarstjórnarfundi í dag, þann 11.október 2011, liggur fyrir viljayfirlýsing milli Akraneskaupstaðar og Regins ehf. um framkvæmdir við byggingu Sólmundarhöfða 7, Akranesi.

Við undirritaðir bæjarfulltrúar leggjum til að málinu verði frestað og það yfirfarið af endurskoðanda bæjarins með tilliti til heildaráhrifa á fjárhag bæjarins, sérstaklega þar sem nú liggur fyrir að Akraneskaupstaður þarf að leggja út umtalsverða upphæð til að kaupa húsnæði í kjölfar yfirtöku á málefnum fatlaðra."

Rök okkar fyrir þessari tillögu eru eftirfarandi:

· Akraneskaupstaður þarf ekki að koma að þessari framkvæmd með fjárútlátum þar sem samkvæmt byggingareglugerð hefur kaupstaðurinn vald til að a) krefjast þess að byggingaréttarhafi klári framkvæmdina samkvæmt samþykktum bygginganefndarteikingum eða b) krefjast þess að byggingaréttarhafi fjarlægi það af lóðinni sem þegar hefur verið byggt og skili henni í upphaflegu ástandi. Akraneskaupstaður getur beitt öðrum hvoru þessara úrræða og lagt dagsektir á byggingaréttarhafann uns hann uppfyllir kröfur bæjarins.

· Ef samþykkt verður að endurgreiða hluta af byggingaleyfisgjöldum vegna hússins má telja það víst að þeir aðilar sem hafa ekki fengið endurgreidd byggingaleyfisgjöld muni gera kröfu um endurgreiðslu á grundvelli jafnréttissjónarmiða. Við bendum t.d. á byggingaréttarhafa á lóðinni Stillholt 21 sem mun væntanlega krefja Akraneskaupstað um u.þ.b. 28 milljónir í endurgreidd byggingaleyfisgjöld.

· Það leiguverð sem Akraneskaupstaður er að skuldbinda sig til að greiða er allt að 50% yfir núverandi markaðsverði á hvern fermetra á Akranesi. Samkvæmt upplýsingum fasteignasala er leiguverð hér nú um kr. 1.000,- pr. fermetra en samkvæmt viljayfirlýsingunni verður það allt að kr. 1.500,- pr. fermetra. Það er ekkert óeðlilegt að Akraneskaupstaður muni leigja einhverjar íbúðir í þessari byggingu en það á að gerast á markaðsverði hvers tíma.

· Ljóst er að stjórn Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili, sem er sjálfseignarstofnun hafnaði því einróma á fundi sínum þann 27.september sl. Að Sólmundarhöfði 7 yrði tengdur við byggingu Höfða með tengigangi."

Einar Brandsson, (sign), Gunnar Sigurðsson, (sign).

Tillaga Einars og Gunnars borin upp. Feld 7:2. Með: GS, E.Br.

Bæjarstjórn samþykkir viljayfirlýsinguna og samkomulagið 7:2. Á móti: E.Br, GS.

5.Brekkubæjarskóli - aðkoma að skólastjórn og starfsmannamálum

1107106

Bæjarráð vísar tillögum starfsmanna- og gæðastjóra dags. 26.9.2011 um svör við fyrirspurnum Hrannar Eggertsdóttur og Bjarna Þórs Bjarnasonar til samþykktar í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna 8:0. Hjá sat GS.

6.Bæjarstjórn - 1132

1109017

Fundargerð bæjarstjórnar frá 27. september 2011.

Fundargerðin samþykkt 9:0.

7.Bæjarráð - 3127

1109022

Fundargerð bæjarráðs frá 29. september 2011.

Lögð fram.

7.1.Fjármál sveitarfélaga

1109145

7.2.Jafnréttisáætlun.

912027

7.3.Brekkubæjarskóli - aðkoma að skólastjórn og starfsmannamálum

1107106

7.4.Úttekt á upplýsingakerfum Akraneskaupstaðar

1012105

7.5.Rekstrarstaða Akraneskaupstaðar 2011

1106063

7.6.Fjárhagsstaða stofnana 2011

1103148

7.7.Sólmundarhöfði 7 - þjónustu- og öryggisíbúðir

1109148

7.8.Fjöliðjan - Vörubirgðir við áramót 2010-2011

1109136

7.9.Dagforeldrar - námskeið

1109133

7.10.FEBAN - bókband - styrkbeiðni

1108143

Til máls tóku: GS, GPJ, IV.

7.11.Menningarráð Vesturlands - starfsemi

1009027

7.12.Starfsmannamál Brekkubæjarskóla

1010199

7.13.Almenningssamgöngur milli Akraness og höfuðborgarsvæðisins - Vegagerðin

1109152

7.14.Gjaldskrár Fjölskyldustofu

1006101

7.15.Reglur um styrki til greiðslu fasteignagjalda.

1102345

7.16.Brunabót - aðalfundarboð

1109196

7.17.Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2011

1109141

7.18.Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi

1109017

7.19.Menningarráð Vesturlands fundargerðir 2011

1101174

7.20.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2011

1102040

7.21.Starfshópur um framkvæmdasamninga og/eða félagsaðstöðu við félagasamtök.

1101010

8.Bæjarráð - 3128

1110004

Funargerð bæjarráðs frá 6. október 2011.

Lögð fram.

8.1.Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011.

1101181

8.2.Rekstrarstaða Akraneskaupstaðar 2011

1106063

8.3.Bæjarmálasamþykkt - breyting 2011

1102358

8.4.Afmæli og aðrir merkisviðburðir hjá stofnunum bæjarins

1109102

8.5.Tækjakaup - framlag frá sveitarfélögum

1110048

8.6.Kvennafrídagurinn 25. október n.k. - hvatning

1110061

8.7.Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi

1109017

8.8.Áhrif nýrra sveitarstjórnarlaga á stjórnsýslu sveitarfélaga.

1110005

8.9.Búnaðarkaup stofnana árið 2011

1101176

Til máls tóku: HR,GS,bæjarstjóri,E.Br,HR,ÞÓ.

8.10.Byggðasafnið í Görðum - Beiðni um aukafjárveitingu

1110068

8.11.Keltneskt fræðasetur á Akranesi

1106156

8.12.70 ára afmæli Akraneskaupstaðar 2012

1106157

8.13.Úttekt á upplýsingakerfum Akraneskaupstaðar

1012105

8.14.Starfsmannamál.

1110087

8.15.Strætó bs. - útboð á akstri

1103168

Til máls tóku: GS, bæjarstjóri.

9.Stjórn Akranesstofu - 46

1110002

Fundargerð stjórnar Akranesstofu frá 4. október 2011.

Lögð fram.

9.1.70 ára afmæli Akraneskaupstaðar 2012

1106157

9.2.Kútter Sigurfari - staða mála

903133

9.3.Keltneskt fræðasetur á Akranesi

1106156

9.4.Kynningarefni fyrir Akranes

1104149

9.5.Vökudagar 2011

1110011

9.6.Menningarverðlaun 2011

1110012

9.7.Akranesmynd vegna 70 ára afmælis Akraneskaupstaðar

1110014

9.8.Búnaðarkaup stofnana árið 2011

1101176

9.9.Garðakaffi - rekstur

1109005

9.10.Byggðasafnið í Görðum - Beiðni um aukafjárveitingu

1110068

10.Skipulags- og umhverfisnefnd - 55

1109025

Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 3. október 2011.

Lögð fram.

10.1.Endurskoðun aðal- og deiliskipulags á Akranesi

1012111

10.2.Samfélagsstígurinn - göngustígur á Sólmundarhöfða

1109213

10.3.Umsókn um svæði - Blómalundur 4 og Baugalundur 7, 9 og 11

1109211

11.Fjölskylduráð - 73

1109003

Fundagerð fjölskylduráðs frá 20. september 2011.

Lögð fram.

11.1.Sérfræðiþjónusta - áfrýjun

1109053

11.2.Liðveisla - áfrýjun

1101130

11.3.Skólastyrkur - áfrýjun

1109025

11.4.Fjárhagsaðstoð - áfrýjun

1109054

11.5.Fjárhagsaðstoð - áfrýjun

1109075

11.6.fjárhagsaðstoð-áfrýjun

1109096

11.7.Grunnskólastarf 2011-2012

1109121

11.8.FEBAN - bókband - styrkbeiðni

1108143

11.9.Velferðavaktin - velferð skólabarna

1109019

11.10.Starfshópur um skólamál

1108133

11.11.Starfshópur um félagsþjónustu

1108132

11.12.Starfshópur um íþrótta- og æskulýðsmál

1108134

11.13.Dagforeldrar - námskeið

1109133

11.14.Fjárhagsstaða stofnana 2011

1103148

11.15.Gjaldskrár Fjölskyldustofu

1006101

11.16.Fjöliðjan - Vörubirgðir við áramót 2010-2011

1109136

11.17.Fjöliðjan - Ósk um kaup á pökkunarbúnaði

1109135

12.Fjölskylduráð - 74

1109018

Fundargerð fjölskylduráðs frá 4. október 2011.

Lögð fram.

12.1.fjárhagsaðstoð-áfrýjun

1110015

12.2.fjárhagsaðstoð-áfrýjun

1110022

12.3.Málefni fatlaðra, flutningur yfir til sveitarfélaga.

905030

12.4.Húsnæðismál - áfrýjun

1110046

12.5.FEBAN - Styrkbeiðni 2011

1109173

12.6.Ávísun á öflugt tómstundastarf 2011

1102008

12.7.Starfshópur um félagsþjónustu

1108132

Til máls tóku: E.Br, SK.

12.8.Starfshópur um íþrótta- og æskulýðsmál

1108134

12.9.Starfshópur um skólamál

1108133

13.Framkvæmdaráð - 65

1110003

Fundargerð framkvæmdaráðs frá 6. október 2011.

Lögð fram.

13.1.Sólmundarhöfði - malbikun

1110008

13.2.Jaðarsbakkar - breyting á sal 2

1109172

Til máls tóku: GS, E.Ben, GPJ.

13.3.Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - vaktafyrirkomulag

1109022

13.4.Fjárhagsáætlun 2012 - Framkvæmdastofa

1110097

14.Fundargerðir stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur - 2011

1101190

Fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur númer 161 frá 23. september 2011.

Til máls tóku: GS, HR, SK, bæjarstjóri.

Lögð fram.

15.Fundargerðir Höfða 2011

1102004

Fundargerð stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis, númer 7 frá 27. september 2011.

Lögð fram.

Fundi slitið - kl. 19:15.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00