Fara í efni  

Bæjarráð

3358. fundur 08. nóvember 2018 kl. 08:15 - 19:55 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Elsa Lára Arnardóttir formaður
  • Valgarður L. Jónsson varaformaður
  • Rakel Óskarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun 2019-2022

1810140

Fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun fyrir árin 2019-2022 lögð fram til ákvörðunartöku sem hluti af fjárhagsáætlun vegna sama tímabils.
Bæjarráð samþykkir fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun 2019 og þriggja ára áætlun 2020 til 2022 og vísar til bæjarstjórnar til ákvörðunar.

2.Fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2020-2022

1806199

Fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2020-2022 lögð fram til samþykktar í bæjarráði.

Þorgeir Hafsteinn Jónsson fjármálastjóri, Jóhann Þórðarson endurskoðandi og Andrés Ólafsson verkefnastjóri sitja fundinn undir þessum lið.

Hlé gert á fundinum kl. 10:10 vegna fundar formanns bæjarráðs og bæjarstjóra með félags- og jafnréttisráðherra.

Fundi framhaldið kl. 16:00.
Bæjarráð samþykkir fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára ára áætlun 2020 til 2022 ásamt tillögum og vísar til bæjarstjórnar til samþykktar.

3.Höfði - viðauki 2018

1805135

Viðauki 2 við fjárhagsáætlun Höfða fyrir árið 2018 til umfjöllunar og afgreiðslu.
Viðaukinn lagður fram til kynningar og vísað til formlegrar afgreiðslu með gerð viðauka við fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar nr. 5 vegna ársins 2018.

4.Endurskoðun á bæjarmálasamþykkt

1805127

Endurskoðun á bæjarmálasamþykkt Akraneskaupstaðar - framlagning vegna síðari umræðu í bæjarstjórn Akraness.
Bæjarráð samþykkir breytingar á bæjarmálasamþykkt Akraneskaupstaðar og vísar málinu til síðari umræðu í bæjarstjórn.

5.Kauptilboð / Faxabraut 10

1811068

Kauptilboð í Faxabraut 10.
Bæjarráð hafnar tilboðinu og felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins.

6.Jöfnunarsjóður - ný reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga í samráðsgátt til umsagnar

1811055

Drög að endurskoðaðri reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna umsögn vegna reglugerðarinnar, en hún felur í sér breytingar á forsendum útgjaldajöfnunarframlaga.

Fundi slitið - kl. 19:55.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00