Fara í efni  

Bæjarráð

3307. fundur 19. apríl 2017 kl. 08:15 - 09:45 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Ólafur Adolfsson formaður
  • Rakel Óskarsdóttir varaformaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ingibjörg Pálmadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir verkefnastjóri
  • Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Sædís Alexía Sigurmundsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá
Jóhann Þórðarson endurskoðandi, Þorgeir Jónsson fjármálastjóri og Andrés Ólafsson verkefnastjóri tóku sæti á fundinum undir liðum 1 til 3.

1.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2016 - A hluti

1704092

Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2016 - A hluti
1.1 Aðalsjóður
1.2 Eignasjóður
1.3 Byggðasafn
1.4 Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf.
Rekstrarniðurstaða A-hluta, fyrir óreglulega liði, er jákvæð um 152,9 mkr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 93,2 mkr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.
Rekstrarniðurstaða A-hluta, eftir óreglulega liði þ.e. uppgjör lífeyrisskuldbindingar Höfða, er jákvæð um 122,9 mkr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 66,6 mkr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

Lykiltölur:
Fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga:
Rekstrarjöfnuður síðustu þriggja ára í þús.króna 615.179 en nam kr. 808.379 árið 2015.
Skuldaviðmið er 62,0% en var 75,0% árið 2015.
EBITDA framlegð er 4,3% en var 6,6% árið 2015.
Veltufé frá rekstri er 16,4% en var 13,4% árið 2015.
Skuldahlutfall (skuldir/rekstrartekjum) er 99% en var 104% árið 2015.
Eiginfjárhlutfall er 55% og var einnig 55% árið 2015.
Veltufjárhlutfall er 1,8 en var 1,3 árið 2015.

Bæjarráð staðfestir ársreikninga Aðalsjóðs og Eignasjóðs með undirritun sinni og leggur til við bæjarstjórn að ársreikningar Aðalsjóðs, Eignasjóðs, Byggðasafnsins í Görðum og Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. verði samþykktir.

2.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2016 - B hluti

1704093

Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2016 - B hluti
2.1 Fasteignafélag Akraneskaupstaðar ehf.
2.2 Gáma
2.3 Háhiti ehf.
2.4 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Rekstrarniðurstaða B-hluta, fyrir óreglulega liði þ.e. uppgjör lífeyrisskuldbindinga Höfða, var neikvæð um 32,6 mkr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 48,5 mkr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu.
Rekstrarniðurstaða B-hluta, eftir óreglulega liði þ.e. uppgjör lífeyrisskuldbindinga Höfða, var jákvæð um 892,2 mkr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 936,4 mkr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

Bæjarráð staðfestir ársreikning Gámu með undirritun sinni og leggur til við bæjarstjórn að ársreikningar Fasteignafélagsins ehf., Gámu, Háhita ehf. og Höfða hjúkrunar og dvalarheimilis verði samþykktir.

3.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2016 - samstæða

1704094

Samstæðureikningur Akraneskaupstaðar 2016.
Rekstrarniðurstaða Akraneskaupstaðar, fyrir óreglulega liði þ.e. uppgjör lífeyrisskuldbindinga Höfða, var jákvæð um 120,3 mkr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 44,7 mkr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.
Rekstrarniðurstaða Akraneskaupstaðar, eftir óreglulega liði þ.e. uppgjör lífeyrisskuldbindinga Höfða, var jákvæð um 1.015,1 mkr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 1.003,1 mkr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

Lykiltölur:
Fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga:
Rekstrarjöfnuður síðustu þriggja ára í þús.króna 1.235.960 en nam kr. 411.512 árið 2015.
Skuldaviðmið er 62,0% en var 84,0% árið 2015.
EBITDA framlegð er 3,9% en var 4,3% árið 2015.
Veltufé frá rekstri er 14,6% en var 11,9% árið 2015.
Skuldahlutfall (skuldir/rekstrartekjum) er 94% en var 116% árið 2015.
Eiginfjárhlutfall er 53% en var 45% árið 2015.
Veltufjárhlutfall er 1,7 en var 1,3 árið 2015.

Bæjarráð staðfestir samstæðuársreikning Akraneskaupstaðar með undirritun og leggur til við bæjarstjórn að reikningurinn verði samþykktur.

Fundi slitið - kl. 09:45.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00