Fara í efni  

Bæjarráð

3290. fundur 29. september 2016 kl. 17:00 - 19:55 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Ólafur Adolfsson formaður
  • Valdís Eyjólfsdóttir varaformaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ingibjörg Pálmadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Fundargerðir 2016 - SSV

1602246

123. fundargerð stjórnar SSV frá 16. mars 2016.
124. fundargerð stjórnar SSV frá 18. maí 2016.
125. fundargerð stjórnar SSV frá 24. ágúst 2016.
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

2.Fundargerðir 2016 - Samband ísl. sveitarfélaga

1603032

842. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 2. september 2016.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3.Fundargerðir - Sorpurðun Vesturlands 2016

1609004

19. fundargerð aðalfundar Sorpurðunar Vesturlands frá 6. apríl 2016.
Fundargerð stjórnar Sorpurðunar Vesturlands frá 13. júní 2016.
Fundargerð stjórnarfundar Sorpurðunar Vesturlands frá 24. ágúst 2016.
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

4.Hestamannafélagið Dreyri.

1609088

Erindi Hestamannafélagsins Dreyra um stuðning Akraneskaupstaðar vegna áframhaldandi uppbyggingar reiðleiða á Akranesi.Einnig kynnt beiðni frá hestamannafélaginu um þátttöku Akraneskaupstaðar í byggingu reiðhallar.

Gestir frá Dreyra sem taka sæti á fundinum undir þessum lið voru: Ása Hólmarsdóttir, Sigurður Arnar Sigurðsson, Hrafn Einarsson, Stefán Jónsson og Anton Ottesen.

Bæjarráð þakkar forsvarmönnum Dreyra fyrir kynninguna og er erindunum vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

5.Knattspyrnufélag ÍA - samstarf

1609060

Erindi Knattspyrnufélags ÍA um aukinn stuðning Akraneskaupstaðar við KFÍA vegna ýmissa verkefna.

Gestir frá KFÍA sem taka sæti á fundinum undir þessum lið voru Magnús Guðmundsson, Sævar Þráinsson og Hulda Birna Baldursdóttir.
Bæjarráð þakkar forsvarmönnum KFÍA fyrir kynninguna og er erindinu vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

6.Rekstrarsamningur Vélhjólaíþróttafélags Akraness

1601395

Ósk Vélhjólafélags Akraness um viðræður við Akraneskaupstað um endurnýjun rekstrarsamnings.

Bæjarráð býður forsvarsmönnum Vélhjólafélagins á næsta fund ráðsins og er afgreiðslu erindisins frestað.

7.Nýr golfskáli - félagsaðstaða fyrir GL

1609101

Erindi Golfklúbbsins Leynis um stuðning Akraneskaupstaðar vegna uppbyggingar á nýjum golfskála á Akranesi.

Gestir frá Golfklúbbnum sem taka sæti á fundinum undir þessum lið voru Þórður Emil Ólafsson og GUðmundur Sigvaldason.
Bæjarráð þakkar forsvarmönnum Golfklúbbsins Leynis fyrir kynninguna og er erindinu vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

8.FIMA - húsnæðismál

1310193

Erindi Fimleikafélags Akraness um framtíðarlausn á húsnæðismálum félagsins og ósk um viðræðum við bæjarráð um málefnið.
Bæjarráð býður forsvarsmönnum FIMA að koma á næsta fund ráðsins og er afgreiðslu erindisins frestað.

9.Seljuskógar 6 - 8 - umsókn um byggingarlóð

1609134

Umsókn Jóns Þórs Jónssonar/Halldóru Andrésdóttur og umsókn Bjarna Inga Björnssonar/Ingibjargar Barðadóttur um lóð við Seljuskóga 6 - 8.
Bæjarráð samþykkir úthlutun Seljuskóga 6-8 til umsækjenda.

10.Blómalundur 1-3 - Umsókn um byggingarlóð

1609159

Umsókn Sjamma ehf. um byggingarlóð að Blómalundi 1-3.
Bæjarráð samþykkir úthlutun Blómalundar 1-3 til umsækjanda.

11.Sérkennsla í grunnskólum stuðningsfulltrúar

1604219

Vegna fjölgunar nemenda með fötlunargreiningu í Brekkubæjarskóla var óskað eftir heimild til ráðningu á stuðningsfulltrúa í 90% stöðu frá 1. maí til 10. júní 2016. Bæjarráð samþykkti þá beiðni.

Fjölgun hefur verið á nemendum með fötlunargreiningu nú við upphaf skólaársins 2016-2017. Óskað er því eftir fjárheimild til áframhaldandi ráðningu stuðningsfulltrúa í 100% stöðu frá 1. september síðastliðinn til 31. desember 2016.

Kostnaður vegna þessarar beiðni er samtals kr. 1.700.000 með launatengdum gjöldum.
Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir víkur af fundi undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir fjárheimild til ráðningu stuðningsfulltrúa í 100% starf frá 1. september síðastliðinn til 31. desember 2016. Fjármunum verður ráðstafað af liðnum 20830-4980.

Jafnframt verði beiðni um áframhaldandi ráðningu stuðningsfulltrúa út skólaárið vísað til afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2017.

12.Búnaðar- og áhaldakaup 2016 (tækjakaupasjóður)

1512119

Vegna fjölgunar nemenda og aukningu beiðna um greiningu, óskar sérfræðiþjónustu skóla- og frístundasviðs eftir úthlutun fjármuna úr tækjakaupasjóði í kaup á nýju greiningartæki að fjárhæð kr. 625.425.
Bæjarráð samþykkir úthlutun fjármuna úr tækjakaupasjóði til kaupa á greiningartæki.

Fjármunum verður ráðstafað af liðnum 20830-4660.

13.Lög um almennar íbúðir - framkvæmd

1607044

Erindi Íbúðalánasjóðs um framkvæmd laga um almennar íbúðir.
Bæjarráð vísar erindinu til velferðar- og mannréttindaráðs til frekari úrvinnslu.

14.Fasteignamat atvinnuhúsnæðis og álagning fasteignaskatta

1609147

Erindi framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda um þróun fasteignamats atvinnuhúsnæðis og álagningu fasteignaskatta.
Bæjarráð þakkar erindið og felur bæjarstjóra að afla frekari upplýsinga um þróun fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði og samanburð við önnur sveitarfélög.

15.SSV - haustþing 2016

1609189

Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verður haldið þann 5. október næstkomandi á Hótel Stykkishólmi.
Bæjarráð þakkar fyrir boðið. Fulltrúar Akraneskaupstaðar auk bæjarstjóra verða:
Valdís Eyjólfsdóttir
Ólafur Adolfsson
Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir
Ingibjörg Valdimarsdóttir
Sigrún Inga Guðnadóttir

Fundi slitið - kl. 19:55.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00