Bæjarráð
Dagskrá
1.Sorphirðugjöld 2016 - endurákvörðun
1606056
Umsögn Heilbrigðiseftirlits Vesturlands varðandi gjaldskrá sorpmála á Akranesi, dags. 20. júní 2016.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá sorpmála hjá Akraneskaupstað vegna ársins 2016.
2.Upplýsingaskilti við Hvalfjarðargöng
1605174
Tillaga um upplýsingaskilti við Hvalfjarðargöng.
Bæjarráð samþykkir að setja upp upplýsingaskilti við Hvalfjarðargöng, norðan megin við hringtorgið, þar sem svokallað Krónuskilti var áður staðsett, og felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir gagnvart Hvalfjarðarsveit og óska eftir formlegri heimild. Einnig er bæjarstjóra falið að óska eftir því að landið verði skilgreint sem þéttbýli í aðalskipulagi þannig að hægt sé að setja upp auglýsingaskilti í framtíðinni.
Kostnaði við gerð upplýsingaskiltis og leigu verði mætt af liðnum 13640-2890.
Kostnaði við gerð upplýsingaskiltis og leigu verði mætt af liðnum 13640-2890.
3.Lopapeysan, Írskir dagar 2016 - tækifærisleyfi og tímabundið áfengisleyfi 2. júlí
1606101
Umsókn Vina Hallarinnar ehf. um tækisfærisleyfi vegna tónlistarviðburðarins Lopapeysan 2016.
Bæjarráð samþykkir leyfisveitinguna.
4.Starfslok sviðsstjóra
1606099
Uppsögn sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs
Bæjarráð þakkar Jóni Hróa fyrir hans góðu störf í þágu Akraneskaupstaðar og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Fundi slitið - kl. 10:45.