Fara í efni  

Bæjarráð

3217. fundur 02. maí 2014 kl. 08:15 - 09:00 í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Þröstur Þór Ólafsson formaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir varaformaður
  • Gunnar Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Dagný Jónsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson framkvæmdastjóri
Dagskrá

1.Sveitarstjórnarkosningar 2014 - 31. maí 2013.

1401042

Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 29.4.2014 að fela bæjarráði að semja kjörskrá. Jafnframt er bæjarráði veitt fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi vegna kosninga til sveitarstjórna þann 31. maí nk. í samræmi við 10. gr. laga númer 5/1998 um kosningar til sveitarstjórna. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði ákvörðun um greiðslur til yfirkjörstjórnar, undirkjörstjórna og annarra starfsmanna.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi greiðslur til kjörstjórna og starfsmanna vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí nk.:

Nefndafundir:
Formaður yfirkjörstjórnar kr. 22.097
Aðrir fulltrúar í yfirkjörstjórn kr. 11.699

Laun á kjördegi:
Formaður yfirkjörstjórnar kr. 71.677
Yfirkjörstjórn aðalmenn kr. 45.891
Formenn undirkjörstjórna kr. 40.793
Aðalamenn undirkjörstjórna kr. 31.869

Auk þessa greiðslu yfirirvinnu til starfsmanna Brekkubæjarskóla vegna þrifa og tilfallandi starfa á kjördegi. Greiðslur til þeirra sem koma að talningu atkvæða verði samkvæmt 133. launaflokki (grunnröðun án persónuálags) samkvæmt kjarasamningi starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og launanefndar sveitarfélaga vegna starfsmanna Akraneskaupstaðar sbr. framangreindar reglur Akraneskaupstaðar um laun hjá Akraneskaupstað til bæjarfulltrúa og fyrir setu í nefndum og ráðum frá 10. september 2013 (kr. 2700 per tíma).

2.Þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara

1302181

Á fundi starfshóps um þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara þann 28.4.2014, var gerð tillaga um að taka upp deiliskipulagið vegna lóðarinnar við Dalbraut 6 og nágrennis með framtíð þjónustumiðstöðvarinnar í huga. Deiliskipulagsvinnan fari fram í nánu samstarfi við fjölskyldu- og framkvæmdasvið Akraneskaupstaðar og FEBAN.
Starfshópurinn telur sig hafa lokið starfi sínu samkvæmt erindisbréfi og telur mikilvægt að hafist verði handa við skipulagsvinnu og undirbúning framkvæmda sem fyrst.

Bæjarráð þakkar starfshópnum fyrir vel unnin störf.

Bæjarráð vísar erindi starfshópsins til framkvæmdaráðs.

3.Akralundur 1-5 - umsókn um lóð

1404080

Umsókn Uppbyggingar ehf. dags. 9.4.2014 um byggingarlóð við Akralund 1-5.

Bæjarráð óskar eftir að umsækjandi leggi fram framkvæmdaáætlun vegna umsóknar sinnar fyrir næsta reglulega fund bæjarráðs sem er þann 15. maí nk. Lóðirnar eru fráteknar meðan málið er til frekari úrvinnslu.

4.Akralundur 6 - umsókn um lóð

1404074

Umsókn Uppbyggingar ehf. dags. 9.4.2014 um byggingarlóð við Akralund 6.

Bæjarráð óskar eftir að umsækjandi leggi fram framkvæmdaáætlun vegna umsóknar sinnar fyrir næsta reglulega fund bæjarráðs sem er þann 15. maí nk. Lóðirnar eru fráteknar meðan málið er til frekari úrvinnslu.

5.Akralundur 4 - umsókn um lóð

1404073

Umsókn Uppbyggingar ehf. dags. 9.4.2014 um byggingarlóð við Akralund 4.

Bæjarráð óskar eftir að umsækjandi leggi fram framkvæmdaáætlun vegna umsóknar sinnar fyrir næsta reglulega fund bæjarráðs sem er þann 15. maí nk. Lóðirnar eru fráteknar meðan málið er til frekari úrvinnslu.

6.Akralundur 2 - umsókn um lóð

1404072

Umsókn Uppbyggingar ehf. dags. 9.4.2014 um byggingarlóð við Akralund 2.

Bæjarráð óskar eftir að umsækjandi leggi fram framkvæmdaáætlun vegna umsóknar sinnar fyrir næsta reglulega fund bæjarráðs sem er þann 15. maí nk. Lóðirnar eru fráteknar meðan málið er til frekari úrvinnslu.

7.Asparskógar 24 - umsókn um lóð

1404071

Umsókn Uppbyggingar ehf. dags. 9.4.2014 um byggingarlóð við Asparskóga 24.

Bæjarráð óskar eftir að umsækjandi leggi fram framkvæmdaáætlun vegna umsóknar sinnar fyrir næsta reglulega fund bæjarráðs sem er þann 15. maí nk. Lóðirnar eru fráteknar meðan málið er til frekari úrvinnslu.

8.Álfalundur 2-4 - umsókn um lóð

1404070

Umsókn Uppbyggingar ehf. dags. 9.4.2014 um byggingarlóð við Álfalund 2-4.

Bæjarráð óskar eftir að umsækjandi leggi fram framkvæmdaáætlun vegna umsóknar sinnar fyrir næsta reglulega fund bæjarráðs sem er þann 15. maí nk. Lóðirnar eru fráteknar meðan málið er til frekari úrvinnslu.

9.Álfalundur 6-8 - umsókn um lóð

1404069

Umsókn Uppbyggingar ehf. dags. 9.4.2014 um byggingarlóð við Álfalund 6-8.

Bæjarráð óskar eftir að umsækjandi leggi fram framkvæmdaáætlun vegna umsóknar sinnar fyrir næsta reglulega fund bæjarráðs sem er þann 15. maí nk. Lóðirnar eru fráteknar meðan málið er til frekari úrvinnslu.

10.Álfalundur 10-12 - umsókn um lóð

1404068

Umsókn Uppbyggingar ehf. dags. 9.4.2014 um byggingarlóð við Álfalund 10-12.

Bæjarráð óskar eftir að umsækjandi leggi fram framkvæmdaáætlun vegna umsóknar sinnar fyrir næsta reglulega fund bæjarráðs sem er þann 15. maí nk. Lóðirnar eru fráteknar meðan málið er til frekari úrvinnslu.

11.Fagrilundur 9-15 - umsókn um lóð

1404067

Umsókn Uppbyggingar ehf. dags. 9.4.2014 um byggingarlóð við Fagralund 9-15.

Bæjarráð óskar eftir að umsækjandi leggi fram framkvæmdaáætlun vegna umsóknar sinnar fyrir næsta reglulega fund bæjarráðs sem er þann 15. maí nk. Lóðirnar eru fráteknar meðan málið er til frekari úrvinnslu.

12.Garðyrkjufélag Íslands - ályktanir á aðalfundi 8.4.2014.

1404134

Ályktanir Garðyrkjufélags Íslands á aðalfundi 8.4.2014, til fulltrúa og starfsmanna sveitarfélaga.

Bæjarráð vísar ályktuninni til skipulags- og umhverfisnefndar.

13.Styrkbeiðni frá Lífsýn

1401102

Styrkbeiðni frá Lífsýn dags. 26.3.2014 að upphæð kr. 75.000,- vegna forvarnaverkefnisins "Þú skiptir máli",
forvarnarverkefni gegn sjálfsvígum.

Bæjarráð verður við erindinu.

Fjárhæðinni, kr. 75.000, verði ráðstafað af liðnum óviss útgjöld 21-83-4995.

14.Háhiti - fundargerðir 2014

1404088

6.fundargerð Háhita frá 14.4.2014 og ehf og aðalfundargerð Háhita frá 14.4.2014.

Lagðar fram.

15.Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - aðalfundur 2014.

1403082

Fundargerð aðalfundar frá 28.3.2014, skýrsla stjórnar og ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2013.

Lagðar fram.

16.Menningarráð - aðalfundur 2014

1403083

8. fundargerð aðalfundar Menningarráðs Vesturlands frá 28.3.2014.

Lögð fram.

17.Fundargerðir 2014 - Samband ísl. sveitarfélaga

1402050

815. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 10.4.2014.

Lögð fram.

Fundi slitið - kl. 09:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00