Fara í efni  

Atvinnumálanefnd (2000-2008)

152. fundur 10. janúar 2008 kl. 18:00 - 18:45

152. fundur atvinnumálanefndar var haldinn fimmtudaginn 10. janúar 2008 í fundarsal bæjarskrifstofu, Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 18:00.

_____________________________________________________________

 

Mættir voru:                 Ásgeir Hlinason formaður

                                    Björn Guðmundsson

                                    Dagný Jónsdóttir

                                    Haraldur Helgason

                                    Þórður Þ. Þórðarson.

 

 

Auk þeirra sátu fundinn Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri og Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari sem einnig ritaði fundargerð.

_____________________________________________________________

 

Fyrir tekið:

 

 

1.   Akstur strætisvagns á milli Akraness og Reykjavíkur.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir beiðni Hvalfjarðarsveitar um mögulegan aðgang að samningi kaupstaðarins við Strætó bs. þannig að vagninn stoppi á ákveðnum stöðum á leið sinni um Hvalfjarðarsveit.  Óskaði bæjarstjóri að Atvinnumálanefnd taki beiðni sveitarfélaginsins til umfjöllunar.

Atvinnumálanefnd tekur jákvætt í erindið og felur bæjarritara og formanni að ræða við fulltrúa sveitarfélagsins um framhald mála.

 

2.   Önnur mál.

Rætt um færslu á endastöð strætó. 

Samþykkt að ítreka óskir til tækni- og umhverfissvið að taka málið til umfjöllunar

Einnig var rætt um námskeiðahald fyrir atvinnulífið.

 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:45.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00