Fara í efni  

Atvinnumálanefnd (2000-2008)

130. fundur 01. júní 2005 kl. 18:15 - 19:30

 130. fundur atvinnumálanefndar var haldinn miðvikud. 1. júní 2005 í fundarsal bæjarskrifstofu, Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 18:15.


 

Mættir voru:                 Guðni Tryggvason, formaður

                                    Ástríður Andrésdóttir

                                    Guðrún Elsa Gunnarsdóttir

                                    Þórður Þ. Þórðarson

                                   

 

Auk þeirra  sátu fundinn markaðs- og atvinnufulltrúarnir þeir Björn Elísson og Tómas Guðmundsson, sem einnig ritaði fundargerð.

 

Fyrir tekið:

 

1.  Strætó bs.  ? drög að samningi.

Í ljósi þess að samningur við Vegagerðina liggur ekki fyrir er málinu frestað til næsta fundar atvinnumálanefndar.

 

2.  Safnasvæðið og ferðamál.

Fjallað var um samkomulag um riftun á samningi Byggðasafns og Steinaríkis.  Atvinnumálanefnd hvetur menn til dáða við áframhaldandi uppbyggingu á safnasvæðinu.

 

3.  Klasa-verkefni Impru o.fl.

Markaðs og atvinnumálafulltrúar kynntu verkefnið og var falið að kynna það áfram fyrir markaðsráði.

 

4.  Önnur mál.

 

a.  Erindi frá Halldóri Pálssyni

Atvinnumálanefnd þakkar fyrir áhugann en hefur ekki hug á að taka þátt í þessu verkefni að þessu sinni.

 

b.  Málefni Laugafisks.

Atvinnumálanefnd hvetur Heilbrigðisnefnd Vesturlands og Laugafisk til að finna viðunandi lausn þar sem miklir hagsmundir eru í húfi.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:30

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00