Fara í efni  

Atvinnumálanefnd (2000-2008)

128. fundur 29. mars 2005 kl. 18:15 - 19:20

128. fundur atvinnumálanefndar var haldinn þriðjudaginn 29. mars 2005 í fundarsal bæjarskrifstofu, Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 18:15.


Mættir voru: Guðni Tryggvason, formaður
 Ástríður Andrésdóttir
 Guðrún Elsa Gunnarsdóttir.


Auk þeirra markaðs- og  atvinnufulltrúarnir, Björn Elísson og Tómas Guðmundsson og bæjarritari, Jón Pálmi Pálsson, sem einnig ritaði fundargerð.


Fyrir tekið:

1. Fundur með fulltrúum Orkuveitu Reykjavíkur, fimmtudaginn 31. mars n.k. varðandi nýsköpunar- og þróunarverkefni.
Rætt um undirbúning fundarins og þau mál sem leggja skal áherslu á af hálfu atvinnumálanefndar.  Reiknað er með að markaðs- og atvinnufulltrúar ásamt tveim nefndarmönnum sæki fundinn.
 
2. Fjölskyldustefna Akraneskaupstaðar.
Markaðs- og atvinnufulltrúum falið að undirbúa drög að umsögn.

 

3. Önnur mál.
Gert var grein fyrir viðræðum við fulltrúa Samgönguráðuneytisins og Vegagerðarinnar varðandi sérleyfismál á leiðinni Akranes ? Reykjavík og fyrirhuguðum fundi með forráðamönnum Strætó bs.

Einnig rætt um verkefnastöðu og verkaskiptingu starfsmanna markaðs- og atvinnuskrifstofunnar.


Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:20.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00