Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa
|
1. 2509194 - Viðbygging: Suðurgata 68, 300 Akraneskaupstaður Runólfur Sigðursson sækir um f.h hönd eiganda um byggingarheimild til þessa að byggja bílskúr á lóðinni skv. framlögðum uppdráttum. Deiliskipulagsbreyting hefur verið grenndarkynnt þar sem engar athugasemdir bárust og samþykkt var í bæjarráði 13.8.2026. Samþykki meðeiganda í fjöleignahúsinu liggur fyrir Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
|
|
2. 2607-5547 - Nýbygging: Jaðarsbraut 18, 300 Akraneskaupstaður Guðmundur Hreinsson sækir um f.h lóðarhafa að byggja einbýlishús á 2. hæðum ásamt bílskúr, alls 304,8 fm. Málið var tekið fyrir á 4. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og var þá frestað Uppfærðir aðaluppdrættir hafa verið lagðir inn Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
|
|
3. 2608-6095 - Breyting inni: Merkigerði 9, 300 Akraneskaupstaður Sigríður Halldórsdóttir sækir um f.h eiganda um byggingarleyfi vegna breytinga innanhús. Sótt er um leyfi til að minnka kapellu og breyta aðliggjandi geymslum í kjallara. Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum
|
|
4. 2608-6325 - Kotið - framlenging á stöðuleyfi Valdimar Ingi Brynjarsson sækir um f.h Kotið Sauna um framlengingu á stöðuleyfi til eins ár. Byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi til eins ár.
|





