Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa
|
1. 2607-5514 - Breyting inni: Dalbraut 1, 300 Akraneskaupstaður Guðmundur Oddur Víðisson sækir um f.h eiganda að fara í innanhús breytingar í verslun Krónunar. Sótt er um leyfi til að breyta hluta brunavarna og fyrirkomulagi á kassasvæði. Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum
|
|
2. 2608-5991 - Nýbygging: Skógarlundur 40A, 300 Akraneskaupstaður Bent Larsen Fróðason sækir um f.h lóðarhafa um byggingarleyfi í ufl. 2. Sótt er um að byggja 4 íbúða raðhús, heildar stærð 438,6 fm. Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfi verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum Byggingarfulltrúi bendir á að hafa skal samráð við Veitur um staðsetningu inntaka.
|
|
3. 2608-5988 - Jaðarsbakkar 1 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi Arnór Már Guðmundsson skilar inn f.h eiganda tilkynningu um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi. Sótt er um að gera tvö hurðargöt úr vesturútvegg ásamt minni háttar breytingum innandyra. Einnig verða gerðar breytingar utandyra innan lóðar til að tengja nýjar útihurðar við sundlaugarsvæði. Útlitsbreyting er metin óveruleg skv. gr. 2.3.4 í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingaráfrom eru samþykkt í samræmi við mannvirkjalög 160/2010 og uppfylla grein 2.3.6 í byggingarreglugerð um tilkynningarskylda mannvirkjagerð
|
|
4. 2608-6050 - Umsókn um stöðuleyfi Kristinn H. Guðbrandsson sækir um f.h lóðarhafa um stöðuleyfi vegna tveggja færanlegra húsa sem byggð verða á lóð FVA á Vogarbraut 5. Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfið.
|





