Fara í efni  

Æskulýðs- og félagsmálaráð (2000-2002)

585. fundur 29. ágúst 2000 kl. 08:00 - 09:00
585. fundur æskulýðs- og félagsmálaráðs haldinn á félagsmáladeild
Stillholti 16-18, þriðjud. 29. ágúst 2000 og hófst hann kl. 8:00.

Mættir voru: Inga Sigurðardóttir, formaður,
Tryggvi Bjarnason,
Oddný Valgeirsdóttir,
Sæmundur Víglundsson.

Auk þeirra félagsmálastjóri, Sólveig Reynisdóttir og félagsráðgjafi, Sveinborg Kristjánsdóttir sem ritaði fundargerð.

Fundur settur af formanni.

Fyrir tekið:

1. Umsóknir um starf tómstundafulltrúa í Arnardal.
Umsækjendur eru: Þórhildur Þorsteinsdóttir, Sigurlaug Karen Guðmundsdóttir, Anna Margrét Tómasdóttir og Ásta Hrönn Jónsdóttir.
Æskulýðs- og félagasmálaráð samþykkir tillögu Einars Skúlasonar æskulýðsfulltrúa um að Anna Margrét Tómasdóttir verði ráðin í stöðuna.

2. Umsögn um frumvörp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, um Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins, um breytingu á lögum um vinnumarkaðsaðgerðir nr. 13/1997 og um réttindagæslu fatlaðra.
Æskulýðs- og félagsmálaráð tekur undir umsagnir Landshlutanefndar um yfirfærslu málefna fatlaðra á Vesturlandi. Jafnframt tekur ráðið undir samþykktir bæjarstjórnar Akraness um að málefni fatlaðra verði hluti að félagsþjónustu sveitarfélagsins.

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 09:00
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00