Fara í efni  

Af fingrum fram - Jón Ólafs og Gunnar Þórðar

Upptaktur Vökudaga í ár eru spjalltónleikar í stjórn Jóns Ólafssonar. Gestur hans verður Gunnar Þórðarson sem er landsmönnum að góðu kunnur. Lög þessa meistara melódíunnar eru löngu greypt í þjóðarsálina og mun hann flytja sín þekktustu lög milli þess sem hann rabbar við Jón um einstakan tónlistarferil og lífshlaup.

Miðaverð er 1.000 kr.
Forsala miða verður í Penninn/Eymundsson á Akranesi og hefst á hádegi föstudaginn 19. Enginn posi.

Tónleikarnir fara fram í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Húsið opnar kl. 19:30 og tónleikarnir hefjast kl. 20:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00