Útgáfufögnuður - Stelpur sem ljúga
15. október kl. 17:00-19:00
Fjölskylda og félagsstarf
Bókin Stelpur sem ljúga er nýkomin út og því er tilefni til útgáfufagnaðar sem fer fram í Eymundsson á Akranesi, þriðjudaginn 15.október.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Um bókina:
Einstæð móðir hverfur af heimili sínu en skilur eftir miða með skilaboðum á eldhúsborðinu. Í fyrstu er talið að hún hafi fyrirfarið sér en þegar illa farið lík finnst í Grábrókarhrauni sjö mánuðum síðar standa lögreglukonan Elma og samstarfsmenn hennar frammi fyrir flókinni morðgátu.
Fimmtán árum fyrr liggur nýbökuð móðir á fæðingardeild og hefur óbeit á barninu sem liggur við hlið hennar.