Fara í efni  

Kynningarfundur vegna breytinga á deiluskipulagi Laugarbrautar 20

Breyting á deiliskipulag vegna Laugarbraut 20.

Vinnslutillaga vegna breytinga á deiliskipulagi Akratorgsreit vegna Laugarbraut 20 verður kynnt að Dalbraut 4, Akranesi, 2. maí dags. kl. 17:00 skv. 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagstillagan felst m.a. að bætt er við 288 m2 byggingarreit fyrir færanlegar kennslustofur á suðurhluta lóðar sem snýr að Akurgerði. Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,5 og hámarkshæð 4 metrar. Skoða tillögu hér fyrir neðan.

Eftir kynninguna mun skipulags- og umhverfisráð ljúka gerð tillagnanna og leggja fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa ofangreindar skipulagstillögur verður frestur til að gera athugasemdir við þær minnsta kosti 6 vikur sbr. ákvæði skipulagslaga.

Hægt er að koma á framfæri ábendingum og sjónarmiðum í gegnum https://www.skipulagsgatt.is/issues/2024/470 , þjónustuver Akraneskaupstaðar Dalbraut 4 eða á netfangið skipulag@akranes.is

 

Skipulagsfulltrúi

deiluskipulagsuppdráttur


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00