Fara í efni  

Símenntun á Vesturlandi

Símenntun á Vesturlandi rekur starfsemi sína á Akranesi að Suðurgötu 57. Símenntun á Vesturlandi er ein níu símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni en hún var stofnuð 19. febrúar 1999. Símenntun á Vesturlandi er sjálfseignarstofnun og er á fjárlögum ríkisins. Árlega er gerður samningur á milli Símenntunar og ríkisins, samkvæmt ríkisfjárlögum hverju sinni, en miðstöðin  fær árlega framlag til að standa straum af launa- og húsnæðiskostnaði. 

Markmið með starfsemi Símenntunar á Vesturlandi er að efla og styrkja íslenskt atvinnulíf og samfélag með endur- og símenntun sem tekur mið af þörfum atvinnulífs og einstaklinga. Sérstaklega skal stofnunin huga að þörfum íbúa á Vesturlandi í þessu sambandi. Hlutverk Símenntunar er að auka þekkingu og stuðla að bættum búsetuskilyrðum á Vesturlandi með því að greina og svara menntunarþörf og hvetja til símenntunar í samvinnu við atvinnulíf og íbúa svæðisins. Símenntun á Vesturlandi er miðja þróunar og miðlunar þekkingar fullorðinna á svæðinu og fyrsti kostur íbúa og atvinnulífs í öflun hennar. Símenntun á Vesturlandi tengir saman þá sem vinna að miðlun og öflun þekkingar fullorðinna á svæðinu og stendur fyrir ýmsu námsframboði  í fullorðinsfræðslu, auk náms- og starfsráðgjafar og greiningar á fræðsluþörf innan fyrirtækja

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um Símenntun á Vesturlandi á heimasíðu þeirra.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00