Fara í efni  

Álagning fasteignagjalda

Álagning gjalda fyrir árið 2024

Álagningu fasteignagjalda á Akranesi fyrir árið 2024 er nú lokið. Greiðsluseðlar vegna fyrsta gjalddaga hafa verið gefnir út. Það er Akraneskaupstaður sem annast álagningu á fasteignaskatti, lóðarleigu og sorpgjaldi. Orkuveita Reykjavíkur annast álagningu og innheimtu vatns- og fráveitugjalds. Gjalddagar fasteignagjalda sem eru umfram kr. 25.000 fyrir árið 2024 eru 15. hvers mánaðar frá janúar til og með október. Gjalddagi fasteignagjalda sem eru undir kr. 25.000 er 15. apríl. Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.


Hvar get ég nálgast álagningarseðilinn minn?

Álagningarseðlar verða sendir til íbúðareigenda fæddra 1947 og eldri en aðrir geta nálgast þá hér í Íbúagátt Akraneskaupstaðar og hér á vef Ísland.is. Til að skrá aðgang þarf að nota rafræn skilríki.  

Leiðbeiningar ef Íbúagátt Akraneskaupstaðar er notuð:

  • Á upphafssíðu skal velja hnappinn innskrá.
  • Þegar komið er inná ,,þína síðu" skal velja flipa efst til hægri sem heitir ,,Álagning" og þar birtist álagningarseðil 2024.

Leiðbeiningar ef vefur Ísland.is er notaður: 

  • Velja skal hægra megin á vefsíðunni: ,,mínar síður" og ,,innskrá"
  • Þegar komið er inn á ,,þína síðu" birtist pósthólf þar sem smellt er á ,,skjöl frá opinberum aðilum"  en þar birtist álagningarseðil 2024.

Málefni elli- og örorkulífeyrisþega

Samkvæmt breytingu á reglum á árinu 2017 er framkvæmdin varðandi lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega vegna ársins 2024 þannig að miðað er við nýjustu álagningu ríkisskattstjóra og er afslátturinn því endanlegur í upphafi árs en sérstakar undantekningar kunna þó að vera til staðar. Ekki þarf að sækja sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda þar sem Akraneskaupstaður styðst við gögn ríkisskattstjóra. Skilyrði lækkunar eru að viðkomandi eigi lögheimili á Akranesi og sé þinglýstur eigandi viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. b-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekju- og eignaskatt. Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.

Gögn til frekari upplýsinga:


Kæruleiðir vegna álagningar

Álagning fasteignaskatts er kæranleg til yfirfasteignamatsnefndar og skal kæra borin fram innan þriggja mánaða frá álagningu. Álagning á sorphirðu- og sorpeyðingargjaldi er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá álagningu.


Nánari upplýsingar og aðstoð veitir fjármáladeild Akraneskaupstaðar í síma 433-1000 eða með tölvupósti á netfangið akranes@akranes.is.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00