Fara í efni  

Umhverfisviðurkenningar 2018

Frá afhendingu umhverfisviðurkenninga laugardaginn 28. október.
Frá afhendingu umhverfisviðurkenninga laugardaginn 28. október.

Árlega veitir Akraneskaupstaður einstaklingum og hópum umhverfisviðurkenningar sem staðið hafa vel að því að fegra bæinn. Fjölmargar tillögur bárust í ár frá íbúum Akraness til valnefndar sem skipuð var Sindra Birgissyni umhverfisstjóra og Helenu Guttormsdóttur lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands. Valnefndin skilaði tillögum til skipulags- og umhverfisráð þar sem gerð var tillaga um að veita viðurkenningar í flokkunum falleg einbýlishúsalóð, falleg parhúsalóð, hvatningarverðlaun, samfélagsverðlaun og tré ársins.

Afhending umhverfisviðurkenninga fór fram þann 27. október síðastliðinn í Akranesvita á Breið og var það formaður skipulags- og umhverfisráðs, Ragnar Baldvin Sæmundsson sem gerði grein fyrir vali nefndarinnar og að því búnu afhenti Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri þeim sem fengu viðurkenninguna skilti til að setja utandyra ásamt viðurkenningarskjali og gjafabréfi til kaupa á ávaxtatré hjá Jóni Guðmundssyni garðyrkjubónda á Akranesi.

Í flokknum hvatningarverðlaun hlaut fyrirtækið Bílver en gott aðgengi er upp að húsinu og bygging er afar snyrtileg, glerfletir ávallt hreinir og blómakerjum er vel til haldið. Einnig þykir vel til fundið að minna á afmælisár fyrirtækisins með merkingu yfir inngangi. Eigendur eru hvattir að halda áfram á sömu braut enda er útlit fyrirtækisins bænum til mikils sóma.

Í flokkunum falleg einbýlishúsalóð varð fyrir valinu lóðin við Grenigrund 30. Þar búa þau Garðar Heimir Guðjónsson og Kristín Líndal Hallbjörnsdóttir. Lóðin var áður lokuð en hefur nú verið opnuð og þykir einföld og einstaklega snyrtileg. Í garðinum má finna fjölda runnategunda og fjölæringa sem skapar gott jafnvægi milli húss og lóðar. Í flokknum falleg parhúsalóð varð fyrir valinu lóðin við Jörundarholt 18a og 18b. Þar búa þau Aðalsteinn Hafsteinsson og Guðrún Sigvaldadóttir (18a) og Guðlaugur Elís Jónsson og Guðríður Árnadóttir (18b). Aðkoma að húsinu er einföld, snyrtileg og í samræmi við húsið og hverfið í kring. Garðurinn er mjög lífrænn með mikinn tegundafjölbreytileika og vel hirtur.

Í ár ákvað Akraneskaupstaður að veita umhverfisviðurkenningu fyrir tré ársins og að þessu sinni varð hlynur fyrir valinu. Umræddur hlynur stendur á horni Kirkjubrautar og Stekkjarholts (Kirkjubraut 58) og þykir mikið prýði fyrir götumyndina. Hlynurinn stendur örlítið út yfir gangstétt á Stekkjarholti og skapar skemmtilega upplifun fyrir gangandi vegfarendur sem labba undir það. Tréð er einstofna, fallegur einstaklingur og stendur eitt á lóðinni. Tegundin fær á sig stóra og hvelfda krónu og þarfnast því mikils pláss sem það fær vissulega á þessum stað og nýtur sín til fulls. Tré sýnir að fjölbreyttar tegundir sem eru ekki mikið notaðar þrífast í bænum og gefur vonandi öðrum bæjarbúum innblástur.

Síðast en ekki síst þá voru veitt samfélagsviðurkenningar, en þau eru veitt hópi eða einstaklingum sem hafa unnið óeigingjarnt starf í að efla og hugsa vel um nærumhverfi sitt og bæta þannig gæði þess. Í ár eru viðurkenningarnar tvíþættar, annarsvegar fyrir einstakling og hinsvegar fyrir hóp. Viðurkenning til einstaklings hlaut Guðmundur Stefán Kjartansson fyrir frumkvæði að hreinsun á friðlandinu við Innsta Vog. Viðurkenningu fyrir hóp hlaut Íþróttabandalag Akraness fyrir frumkvæði að hreinsun í bænum af hálfu iðkenda og þjálfara aðildafélaga innan Íþróttabandalags Akraness.

Öllum aðilum var þakkað kærlega fyrir þeirra hlut í að gera bæinn fallegri og vernda umhverfið okkar. Framlag allra þessara aðila er gífurlega dýrmætt fyrir umhverfi sveitarfélagsins og er þátttaka þeirra í að fegra bæinn frábær fyrirmynd annarra íbúa. 

Akraneskaupstaðar óskar viðurkenningarhöfum innilega til hamingju. 
Hér fyrir neðan má sjá myndir af þeim lóðum og tré sem hlutu umhverfisviðurkenningu ásamt myndum frá afhendingunni.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00