Fara í efni  

LOKAÐ FYRIR LOSUN Á MÓTTÖKUSVÆÐI JARÐEFNA

Eftir 8.maí 2024 gilda eftirfarandi reglur um aðgengi og losun efnis á móttökusvæði jarðefna í Grjótkelduflóa (neðan við Slögu):

  • Svæðið er lokað með aðgangshliði og einungis aðgengileg með aðgangslykli frá Akraneskaupstað.
  • Losun skal fara fram kl. 8 - 18 á virkum dögum, nema með heimild umsjónaraðila.
  • Heimilt er að losa uppgrafið jarðefni.
  • Heimilt er að losa unnið malar- og grjótefni.
  • Heimilt er að losa lífrænan garðaúrgang og niðursöguð tré (undir 1 metra lengd).
  • Heimilt er að losa hrein steinsteypubrot (mesta lengd undir 30 cm) án útistandandi bendistáls.
  • Allt efni skal ómengað af olíu, plasti, timbri og öðrum spilliefnum.
  • Losa skal farm á afmarkaða staði innan svæðis og eftir leiðbeiningum starfsmanna.
  • Gjaldtaka fyrir losun er í samræmi við þjónustugjaldskrá og skal gengið frá greiðslu fyrirfram hjá Akraneskaupstað

Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri Akraneskaupstaðar.

Beiðni um aðgengi skal senda á þjónustuver Akraneskaupstaðar, akranes@akranes.is með minnst 3 daga fyrirvara.

Minnt er á að losun úrgangs og jarðefna á víðavangi á Akranesi er óheimil.

Skipulags- og umhverfissvið Akraneskaupstaðar


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00