Auk félagslegrar ráðgjafar veitir félagsþjónustan sérhæfða ráðgjöf til fatlaðra og fjölskyldna þeirra, m.a. í formi stuðningsviðtala og ráðgjafar til fólks úti í þjóðfélaginu sem starfar með fötluðu fólki. Hjá deildinni getur fólk m.a. fengið upplýsingar um rétt sinn til þjónustu en mat á þjónustuþörf er unnið í samvinnu við þá aðila sem í hlut eiga. Samhæfing ýmissa þátta, s.s. skóla, heimilis, tómstunda og vinnu, er nauðsynleg til að þjónustan nýtist sem best. Samstarf er við greiningar- og meðferðaraðila í heimabyggð og á höfuðborgarsvæðinu.
Einstaklingar með lögheimili á Akranesi eða í Hvalfjarðarsveit hafa rétt á að sækja um sérhæfða ráðgjöf. Hægt er að óska eftir viðtali í gegnum heimasíðu Akraneskaupstaðar eða með því að hafa samband við þjónustuver Akraneskaupstaðar í síma 433 1000.
Eftir móttöku umsóknar er umsækjandi boðaður í viðtal hjá starfsmanni félagsþjónustunnar. Í framhaldi af því er umsóknin tekin fyrir á teymisfundi sem afgreiðir umsóknina. Skriflegt svar sendist umsækjanda að afgreiðslu lokinni.
Nánari upplýsingar um sérhæfða ráðgjöf veitir Berglind Jóhannesdóttir berglind.johannesdottir@akranes.is og
Arnheiður Andrésdóttir ráðgjafarþroskaþjálfi bæði í tölvupósti á netfangið arnheidur.andresdottir@akranes.is og í síma 433 1000.