Fara í efni  

Fréttasafn

Álagning fasteignagjalda ársins 2018

Álagningu fasteignagjalda á Akranesi fyrir árið 2018 er nú lokið. Greiðsluseðlar vegna fyrsta gjalddaga hafa verið póstlagðir. Gjalddagar fasteignagjalda sem eru umfram kr. 17.000 fyrir árið 2018 eru 15. hvers mánaðar frá janúar til og með október. Gjalddagi fasteignagjalda sem eru undir kr. 17.000 er 15. apríl.
Lesa meira

Lýsing fyrir breytingu á aðalskipulagi Akraness 2005-2017 - Akraneshöfn

Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum þann 23. janúar 2018 að auglýsa lýsingu á fyrirhugaðri breytingu aðal- og deiliskipulags Akraneshafnar, skv. 1. mgr. 36 gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lesa meira

Fiskmarkaður opnar á ný á Akranesi

Í dag var fiskmarkaður opnaður á ný á Akranesi. Fyrsti aflinn sem boðinn verður upp er afli af Eskey ÓF-80 sem gerir nú út frá Akranesi á vorvertíðinni. Fiskmarkaðurinn opnar í samstarfi við Fiskmarkað Snæfellsbæjar og verður starfræktur að Faxabraut 5.
Lesa meira

Sumarleyfi leikskólanna á árinu 2018

Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum þann 25. janúar síðastliðinn tillögu skóla- og frístundaráðs um sumarleyfi leikskóla Akraneskaupstaðar næstkomandi sumar. Samþykkt var að þeir loki í fjórar vikur og mun tímasetning ráðast af könnun sem hver og einn leikskóli mun gera meðal foreldra.
Lesa meira

Samstaða einkenndi fund um samgöngumál á Vesturlandi

„Opinn fundur um samgöngumál á Vesturlandi skorar á samgönguyfirvöld og Alþingi að bregðast tafarlaust við ótryggu og hættulegu ástandi Vesturlandsvegar á Kjalarnesi með nauðsynlegum framkvæmdum og tryggi jafnframt að tvöföldun Vesturlandsvegar frá Hvalfjarðargöngum til Reykjavíkur verði lokið innan
Lesa meira

Sigurður Elvar Þórólfsson er Skagamaður ársins

Á Þorrablóti Skagamanna sem haldið var þann 20. janúar síðastliðinn var Sigurður Elvar Þórólfsson ritstjóri Skagafrétta og útbreiðslustjóri hjá Golfsambandi Íslands útnefndur Skagamaður ársins 2017. Það var Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs sem kynnti Skagamann ársins með eftirfarandi stökum sem Heiðrún Jónsdóttir þjónustufulltrúi...
Lesa meira

Framtíðarsýn ferðamála á Vesturlandi - opinn vinnufundur á Akranesi

Opnir súpufundir um framtíðarsýn ferðamála á Vesturlandi verða haldnir núna í janúar víðsvegar um Vesturland, þar á meðal á Akranesi þann 22. janúar á Gamla Kaupfélaginu. Fundurinn er frá kl. 17:00 til 20:00 og hvetjum við Skagamenn til þess að vera með og leggja sitt af mörkum í stefnumótun ferðamála á Vesturlandi.
Lesa meira

Opinn fundur um samgöngumál á Vesturlandi

Opinn fundur um samgöngumál á Vesturlandi verður haldinn miðvikudaginn 24. janúar næstkomandi frá kl. 18:00 til 20:00 í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Fundarstjóri er Páll S. Brynjarsson
Lesa meira

Bæjarstjórnarfundur 23. janúar

1267. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 23. janúar kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0.
Lesa meira

Endurbætur á brunaviðvörunarkerfi Íþróttahússins á Vesturgötu

Staðið hafa yfir endurbætur á brunaviðvörunarkerfi í Íþróttahúsinu á Vesturgötu. Á fimmtudaginn 11.janúar s.l. var eldri brunastöð tekin niður til að rýma fyrir nýrri brunastöð. Eldri stöðin var færð upp í svokallaða þekju til að tryggja öryggi barna sem þar eru í frístund eftir skólastarf. Við færslu stöðvarinnar að öðru leyti
Lesa meira
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00