From: Kristjana Benediktsdóttir [mailto:krb@althingi.is] 
Sent: 3. mars 2017 14:37
Subject: Frá nefndasviði Alþingis - 106. mál til umsagnar
 
3. mars 2017
Frá nefndasviði Alþingis.
Til allra sveitarfélaganna – vinsamlegast sendið velferðarnefndum/sviðum, eða eftir því sem við á, þessa umsagnarbeiðni.
 
 
Ágæti viðtakandi.
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um breyt. á lögum um verslun með áfengi og tóbak o.fl. (smásala áfengis), 106. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en  17. mars á netfangið nefndasvid@althingi.is
 
Ef engar athugasemdir eru þarf ekki að senda sérstaka tilkynningu þess efnis. 
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0165.html
 
Vakin er athygli á því að nefndastarf fastanefnda Alþingis er rafrænt. Óskað er eftir að umsagnir og erindi verði send á rafrænu formi.
 
Bent skal á að umsagnir og gögn um málið birtast á vef Alþingis undir fyrirsögninni Innsend erindi á síðu viðkomandi þingmáls.
Leiðbeiningar um ritun umsagna er að finna á vef Alþingis á slóðinni www.althingi.is/vefur/nefndaumsagnir.html
 
Kveðja, 
 
-------------------------------------------- 
Kristjana Benediktsdóttir 
skjalavörður
skrifstofu Alþingis, nefndasviði
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík
sími 563-0433, fax 563-0430
www.althingi.is