FW: Norðurálsmótið fært til 10 - 12. júní 2016
Málsnúmer1601146
MálsaðiliÍþróttabandalag Akraness
Tengiliður
Sent tilGuðný J. Ólafsdóttir
SendandiAkranes Email
CC
Sent12.01.2016
Viðhengi

 

 

From: Haraldur Ingólfsson [mailto:haraldur@kfia.is]
Sent: 12. janúar 2016 10:00
To: Akranes Email ; Regína Ásvaldsdóttir ; Hrönn Ríkharðsdóttir ; Arnbjörg Stefánsdóttir ; Ágústa Elín Ingþórsdóttir
Cc: Magnús Guðmundsson ; larusa@mannvit.is; Sævar Freyr Þráinsson
Subject: Norðurálsmótið fært til 10 - 12. júní 2016

 

Góðan dag ágætu samstarfsaðilar !

 

Eftirfarandi tilkynning fer í loftið í dag:

 

Að beiðni félaga, sem senda meirihluta keppenda á Norðurálsmótið ár hvert, hefur verið ákveðið að færa mótið fram um 1 viku og halda það í þetta skiptið 10. - 12. júní í sumar.   Beiðni félaganna kemur í kjölfar EM - dráttar hjá karlalandsliðinu sem leikur í riðlakeppninni 14., 18. og 22.júní, en fjöldi foreldra og þjálfara hyggst ferðast til Frakklands og sjá leiki Íslands.  Við höfum verið í sambandi við þjálfara 26 félaga sem senda keppendur á mótið og flestir vilja að mótið verði fært en einungis eitt lið mótmælti breytingunni.

 

Það sem einnig styður ákvörðunina er að KSÍ stefnir að því að hafa leiki allra flokka í Íslandsmóti í algjöru lágmarki á meðan riðlakeppni EM stendur ca. 13. - 23. júní.

 

Við gerum okkur grein fyrir að þessi breyting kemur illa við einhverja og biðjumst við velvirðingar á því en stór meirihluti ræður mestu um þessa ákvörðun !

 

Það er stórt mál að færa til mótið og enn eru nokkrir endar sem eru óleystir, en við munum leysa þá og halda frábært Norðurálsmót í sumar eins og undanfarin ár.

 

Bestu kveðjur,

 

Mótsstjórn Norðurálsmótsins Akranesi

 

 

Ljóst er að tímasetningin rétt sleppur er varðar gistingu í grunnskólunum en skólastjórnendur ætla að hjálpa okkur við að láta það ganga.  Takk fyrir ykkar aðstoð.

 

 

Bestu kveðjur,

 

f.h. Knattspyrnufélags ÍA

 

--

Haraldur Ingólfsson

framkvæmdastjóri KFÍA