Héraðsskjalasafn Akraness var stofnað 27. apríl 1993. Umdæmi safnsins er Akraneskaupstaður og það er til húsa að Dalbraut 1, í sama húsi og Bóka- og ljósmyndasafnið. Héraðsskjalasafnið hefur skrifstofu í norðurenda hússins ásamt skjalageymslu.
Héraðsskjalasafnið annast söfnun, innheimtu og varðveislu skjala frá afhendingarskyldum aðilum, þ.e. embættum, stofnunum og félögum á Akranesi. Á Héraðsskjalasafninu er unnið að skrásetningu skjala og þau gerð aðgengileg notendum, auk þess að á allan hátt er leitast við að varðveita og efla þekkingu á sögu umdæmisins. Jafnframt fer fram söfnun skjala einstaklinga og félagasamtaka auk ljósmynda, hljóð- og myndbanda, sem varða sögu héraðsins eða íbúa þess á einhvern hátt.
Héraðsskjalasafnið er opið mánudaga - fimmtudaga kl. 13:00 - 15:00 en lokað er á föstudögum.