Studio Jóka - Opin vinnustofa
30. október kl. 12:00-17:00
Vökudagar
Listamenn verða með opnar vinnustofur þar sem gestum gefst kostur á að fylgjast með vinnu þeirra. Þetta eru Bryndís Siemsen, Eygló Gunnarsdóttir og Ingigerður Guðmundsdóttir. Fjölbreyttir listmunir eru í boði. Leirmunir unnir af Ingigerði svo sem bollar, skálar, kertastjakar og fleira. Myndlist unnin af Bryndísi svo sem myndir, bækur, kort og fleira. Textílverk unnin af Eygló svo sem dúkar, flíkur, skinnkragar, húfur, vettlingar og fleira. Endilega kíkið við, fáið ykkur kaffisopa og njótið listarinnar.