Fara í efni  

Myndlistarsýning Eddu Agnarsdóttur

Edda Agnarsdóttir er fædd í Reykjavík 1950 ólst upp í mið- og vesturbæ Reykjavíkur en bjó einnig um tíma í Grundarfirði, Danmörku og Húsavík. Hún lauk kennaraprófi frá KHÍ úr myndmenntavali. Hún kenndi í mörg ár við grunnskólana á Akranesi þar sem hún hefur búið ásamt fjölskyldu sinni í 31 ár. Edda hefur frá barnsaldri haft mikinn áhuga á myndlist og hefur sótt ýmiss myndlistarnámskeið bæði hérlendis og erlendis. Allar myndirnar á þessari fyrstu einkasýningu Eddu eru abstraktverk eða klippimyndir (collage), unnar með blandaðri tækni. Segja má að Edda láti nú gamlan draum rætast, drauminn um að sinna aðal hugðarefni sínu, myndlistinni. 

Sýningin er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins til 15. október n.k.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00