David Bowie veggur fimm ára.
16-17 júlí
Tónleikar og sýningar
Við höldum hátíð vegna fimm ára afmælis Bowie veggjarins á Akranesi og þess að David Bowie hefði orðið 75 ára á þessu ári. Það verða sýningar á mununum Bowie aðdáenda, tónlistarviðburðir, listmunir og óséð vídeo/ljósmyndir frá heimsókn Bowie á Íslandi. Veitingastaðir og listafólk mun taka þátt með okkur og mun verða smá Bowie markaður með sumum vörum í takmörkuðu upplagi. Svo mun fyrsta Bowie Fanzine tímarit á Íslandi koma út með ýmsu skemmtilegu og óséðu í takmörkuðu upplagi... og fleyra sem verður auglýst síðar og nánari dagskrá verður auglýst er nær dregur. Vonandi sjáum við sem flesta Bowie aðdáendur sem og aðra.