Fara í efni  

Kassabílarallý - Frábær fjölskylduskemmtun!

Kassabílarallý verður haldið á Akranesi 28. ágúst kl. 13:00 - 17:00 á Faxabraut við Bryggjusvæðið 

Hugmyndin er að allir geti tekið þátt án mikils tilkostnaðar og bílarnir verði sem mest smíðaðir úr notuðu efni. Terra ætlar að aðstoða okkur við að safna dekkjum af barnavögnum og reiðhjólum sem safnað verður saman í gám og komið niður í áhaldahús. Akraneskaupstaður mun styrkja keppnina með því að veita aðstöðu í áhaldahúsinu til að smíða bíla ef einhverjir þurfa á því að halda.

4 bílar verða smíðaðir, og gefnir leikskólunum og hver merktur sínum leikskóla. Hugmyndin er að í sumar verði þeir staðsettir á Akratorgi, til þess að auglýsa keppnina og leyfa börnum að leika sér á þeim á daginn.

Frystihúsið leggur okkur lið með því að því að kippa þessum bílum inn af Akratorginu á kvöldin og setja þá út á morgnanna. Þ.e ef þeir eru staðsettir á torginu þegar lokað er

Húsasmiðjan ætlar að leggja til efni í 25 kassabíla sem búið verður að efna niður í svokallað kassabílakitt og verða þau afhent í Áhaldahúsinu á Laugarbraut fyrir börn/keppendur á öllum aldri. Þar verður heitt á könnuni og einnig hægt að fá aðstoð við að setja saman, og útfæra bílanna. Einnig hægt að fá aðstoð við að smíða nýja bíla alveg frá grunni. Alparket, HbHjalt og Á Grænni Grein, sjá um að efna allt efni niður, úthluta því til fólks og aðstoða fólk með samsetningar.

Kassabílarnir verða flaggaðir með flöggum frá Frystihúsinu, Frystihúsið mun einnig bjóða keppendum upp á Kassabíla-ís fyrir keppendur.

Matarvagnarnir Vöffluvagninn, Wingman og Lobsterhut verða á svæðinu á keppnisdegi. 

Skráning fer fram á kassabilarally@gmail.com 
Fram þarf að koma nafn á keppendum, aldur ásamt símanúmeri ábyrgðamanns. 
Lágmark 2 í liði, einn til að ýta og einn til stýra. 

Skorum sérstaklega á fyrirtæki að taka þátt, verðlaun fyrir flottasta fyrirtækjabílinn! 

 

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00