Umræðufundur um hafrannsóknir og rannsóknarhugmyndir í Hvalfirði
Röst sjávarrannsóknasetur býður til umræðufundar um hafrannsóknir og rannsóknarhugmyndir í Hvalfirði miðvikudaginn 30. september í Miðgarði, Hvalfjarðarsveit kl. 19:30.
Mikil losun koldíoxíðs í andrúmsloftið af mannavöldum hefur áhrif á loftslag, súrnun sjávar og veltihringrás Atlantshafsins (AMOC). Alþjóðastofnanir kalla eftir því að draga úr losun og binda það sem losað hefur verið. Margar aðferðir til að binda koldíoxíð í hafi er verið að rannsaka og aukin sjávarloftskipti, eða aukin basavirkni sjávar (e. Ocean Alkalinity Enhancement, OAE) er ein þeirra. Framtíðarákvarðanir alþjóðlega vísindasamfélagsins og löggjafa um mögulega beitingu aðferðarinnar sem kolefnisbindingu þurfa að vera byggðar á vísindalegri þekkingu, sem kallar á rannsóknir.
Sjávarloftskiptarannsókn Rastar er samstarfsverkefni fjölmargra innlendra og erlendra vísindaaðila og óhagnaðardrifinna vísindasamtaka. Rannsóknin hefur það markmið að meta hversu skilvirkt það er að auka basavirkni lítillega við yfirborð sjávar á litlu svæði til þess að efla getu hafsins til þess að binda CO2, án þess að auka enn frekar á súrnun sjávar. Til þess er það magn af Na+ jónum (salt er NaCI) og OH- jónum sem nú þegar eru í sjónum aukið lítillega með því að blanda útþynntri og baískri NaOH vatnslausn í yfirborðssjó. Aðferðin er talin hafa jákvæð áhrif á loftslag og gefa mótvægi við súrnun sjávar. Hér má lesa nánar um rannsóknina.
Birkir Bárðarson, forstöðumaður Rastar, kynnir fyrri og fyrirhugaðar rannsóknir og rannsóknahugmyndir setursins og fer m.a. yfir það hvers vegna rannsóknin er gerð, hvað verði mælt og vaktað og hvað hafi breyst í rannsóknaráætluninni eftir athugasemdir frá nærsamfélagi.
Húsið opnar kl 19:00, fundurinn hefst kl 19:30 og boðið verður upp á léttar veitingar.

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember





