Skráning hafin á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna
Ferðaþjónustuaðilar á Vesturlandi eru hvattir til að taka dagana 26.-28. janúar 2027 frá en þá fer Ferðaþjónustuvikan 2027 fram á höfuðborgarsvæðinu. Vikunni er ætlað að efla samstarf, fagmennsku og tengslamyndun innan ferðaþjónustunnar og koma þar saman aðilar víðs vegar að af landinu. Að viðburðinum standa Markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF), Ferðamálastofa og Íslandsstofa.
Hápunktur vikunnar eru Mannamót Markaðsstofa landshlutanna, sem haldin verða í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 28. janúar. Mannamót eru stærsti kynningar- og tengslamyndunarvettvangur landsbyggðarferðaþjónustunnar þar sem fyrirtæki kynna þjónustu sína fyrir ferðaþjónustufólki, ferðaskrifstofum og öðrum fagaðilum. Fyrir ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi eru Mannamót einstakt tækifæri til að kynna svæðið, mynda ný viðskiptatengsl og styrkja samstarf innan greinarinnar. Aðeins samstarfsfyrirtæki markaðsstofanna geta tekið þátt sem sýnendur en öllum er frjálst að sækja viðburðinn.
Formlegri dagskrá Ferðaþjónustuvikunnar lýkur með Mannamótum en daginn eftir fer fram MidAtlantic ferðakaupstefnan á vegum Icelandair, þar sem innlendir ferðaþjónustuaðilar funda með erlendum kaupendum og samstarfsaðilum.
Markaðsstofa Vesturlands hvetur fyrirtæki í ferðaþjónustu á Vesturlandi til að kynna sér dagskrána vel og nýta þau tækifæri sem felast í þessum mikilvægu dögum fyrir greinina.
Nánari upplýsingar um Ferðaþjónustuvikuna og Mannamót má finna á vefjum Ferðamálastofu og Markaðsstofu landshlutanna.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015