Fara í efni  

Hreyfinámskeið fyrir fólk með fötlun

Við vekjum athygli á nýju námskeiði fyrir fólk með fötlun. Á námskeiðinu er áhersla lögð á hreyfingu, góða leiðsögn og að kynnast undirstöðuatriðum líkamsræktar.

Námskeiðið er á mánudögum, hefst mánudaginn 26. október og fer fram kl. 13.30–14.15. Þjálfari er Gerald Brimir Einarsson, þjálfari hjá World Class, sem leiðir æfingarnar og veitir þátttakendum leiðsögn og stuðning.

Markmiðið er að þátttakendur fái góða æfingu og kynnist því hvernig hægt er að stunda líkamsrækt á eigin forsendum í öruggu og hvetjandi umhverfi.

Námskeiðið er ætlað fólki með fötlun, 18 ára og eldra, á Akranesi og er opið korthöfum World Class.

Við hvetjum áhugasama til að kynna sér námskeiðið og nýta tækifærið til að efla hreyfingu og vellíðan.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu