Fara í efni  

Sjóslys við Ísland - glæsileg útisýning við Akranesvita

Sýningin Sjóslys við Ísland hefur verið sett upp við Akranesvita. Um er að ræða útisýningu á vegum Faxaflóahafna sem hefur staðið á Miðbakka Reykjavíkurhafnar frá því fyrr á þessu ári og vakið mikla athygli.

Sýningin varpar ljósi á þróun sjóslysa við Íslandsstrendur síðustu 150 árin og byggir á umfangsmikilli heimilda- og rannsóknarvinnu. Hún er tileinkuð minningu þeirra þúsunda sjófarenda sem hafa orðið fyrir sjóslysum við Íslandsstrendur frá upphafi vélaaldar til okkar daga. Sýningin veitir jafnframt innsýn í þróun fiskveiða, siglinga og öryggismála á sjó.

Bæði ferðamenn og borgarbúar hafa fjölmennt á sýninguna í sumar. Til stóð að hún stæði uppi í Reykjavíkurhöfn til loka októbermánaðar, en upp kom sú hugmynd að færa sýninguna á Akranes og setja hana upp fyrir hina árlegu Vökudaga sem hefjast þann 22. október næstkomandi. Það hefur nú orðið að veruleika, en það var starfsmaður Faxaflóahafna, Pétur Þór Lárusson, sem setti sýninguna upp við Akranesvita.

Höfundar sýningarinnar eru Guðjón Ingi Hauksson sagnfræðingur, Guðmundur Viðarsson ljósmyndari og sýningastjóri og Agnar Jónas Jónsson skipasmiður. Kortagerð annaðist Hans Hansen.

Áætlanir gera ráð fyrir að sýningin verði opin til áramóta. Hún er opin að nóttu sem degi og bæði bæjarbúar og gestir eru eindregið hvattir til að láta hana ekki framhjá sér fara. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu