Fara í efni  

Vökudagar hefjast í dag - menningin lýsir upp skammdegið

Vökudagar hefjast með pompi og prakt í dag, en þessi árlega menningarhátíð Akurnesinga stendur til 1. nóvember. Allan þann tíma verður menning og mannlíf í forgrunni í bænum.

Vökudagar eru sameiginlegt afrek samfélagsins þar sem einstaklingar, félög, fyrirtæki og stofnanir leggja sitt af mörkum til að skapa lifandi og fjölbreytt menningarlíf. Í ár eru tugir viðburða á dagskrá í þær tæpu tvær vikur sem hátíðin stendur yfir og ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi – hvort sem áhuginn liggur í myndlist, tónlist, bókmenntum, handverki eða skapandi samveru fyrir alla aldurshópa.

Menning styrkir tengsl, vekur forvitni og skapar sameiginlega upplifun. Vökudagar eru því kærkomið tækifæri til að staldra við í amstri dagsins, uppgötva eitthvað nýtt og njóta þess sem samfélagið hefur upp á að bjóða.

Hápunktar Vökudaga 2026

🎭 Setningarhátíð og Listaganga – Hátíðin hefst af krafti í dag, þann 22. október, þegar menningar- og umhverfisverðlaun Akraneskaupstaðar verða afhent. Í kjölfarið ganga bæjarbúar um Akranes og líta við á sýningaropnunum, listafólk opnar vinnustofur sínar fyrir gestum og margar verslanir hafa opið lengur.

🎨 Fjölbreyttar listasýningar - verða víða um Akranes meðan á hátíðinni stendur. Þá verða stórar samsýningar á Höfða, Byggðasafninu og Bókasafninu, auk sýninga á vegum Listfélags Akraness og Ljósmyndafélagsins Vitans.

🛍️ Verslanir og markaðir – Fleiri verslanir taka þátt í Vökudögum en áður, sem er sérstaklega ánægjulegt. Þá verða þrír markaðir á hátíðinni þar sem gestir geta kynnt sér og keypt vandað handverk og spennandi matvöru.

📚 Bókmenntakvöld – býður upp á notalega stund á Bókasafni Akraness þar sem orð, sögur og hugmyndir fá að njóta sín.

🎸 Lilló Hardcorefest – Kraftmikil pönkhátíð í keilusalnum.

🏠 HEIMA-SKAGI – Tónlistarupplifun sem færir tónlistina nær fólkinu og skapar sérstaka stemningu á óvæntum stöðum.

🎬 Kvikmyndasafn Íslands - sýnir svipmyndir frá Akranesi - mælum með!

🌟 Ungt listafólk lætur ljós sitt skína – Listnámsbraut Fjölbrautaskóla Vesturlands og hópurinn Töfrateppið kynna verk sín með sýningu og lifandi viðburði í Römmum og myndum.

🎨 Sköpun fyrir börn og fjölskyldur – Fjölbreyttar smiðjur og námskeið gefa börnum og fjölskyldum tækifæri til að prófa eitthvað nýtt. Þar má nefna hönnunarsmiðju Þykjó, leikmyndagerð, breakdans með Natöshu, klappleikjasmiðju og sirkússmiðju þar sem meðal annars verður hægt að læra að búa til blöðrudýr. Þá verður smiðjan Taktur og texti með Kela og Steinunni sérstaklega ætluð grunnskólanemum.

Taktu þátt í menningarlífinu

Upptalningin hér að ofan er hvergi nærri tæmandi og við hvetjum bæjarbúa og gesti til að kynna sér dagskrána, mæta á viðburði og styðja við það fjölbreytta menningarstarf sem á sér stað á Akranesi. Sérstaklega er vert að skoða dagskrá fyrir börn og ungmenni, sem fá fjölmörg tækifæri til að skapa, læra og taka þátt.

Öll dagskrá Vökudaga 2026 er aðgengileg á nýrri heimasíðu hátíðarinnar, www.vokudagar.is. Auk þess er mikið líf á samfélagsmiðlum hátíðarinnar, en finna má hlekki á þá hér fyrir neðan.

Vökudagar 2026 – menningin sem lýsir upp myrkrið.

Komdu, sjáðu og taktu þátt í hátíð sem fagnar sköpun, samveru og samfélagi!

Vökudagar 2026

Vökudagar á Facebook

Vökudagar á Instagram

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu