Fara í efni  

Tónlistarskólinn fékk veglegan styrk

Tónlistarskólinn á Akranesi fékk nýverið veglegan styrk til hljóðfærakaupa úr Minningarsjóði Geirlaugs K. Árnasonar, en Geirlaugur var einn helsti hvatamaðurinn að stofnun skólans fyrir rúmum 70 árum.

Jónína Erna Arnardóttir skólastjóri tónlistarskólans segir að styrkurinn, sem var rúmlega 1,7 milljónir króna, muni nýtast skólanum afar vel þar sem fyrirhugað er að endurnýja flygilinn í sal skólans.

Það voru synir Geirlaugs, þeir Kári og Hörður, sem afhentu styrkinn, en þeir eru á meðfylgjandi mynd ásamt Jónínu Ernu. Geirlaugur átti einnig dæturnar Ingu Þóru, Þuríði Ernu, Laufeyju og Geirlaugu Björgu.

Upphaflegt markmið sjóðsins var að styðja við efnilegt tónlistarfólk af Akranesi. Nýverið var tekin ákvörðun um að leysa sjóðinn upp og koma þeim fjármunum sem eftir stóðu á góðan stað.

Akraneskaupstaður þakkar fjölskyldu Geirlaugs fyrir þessa höfðinglegu gjöf.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu