Fara í efni  

Lokun á Akranesvegi/Akrafjallsvegi í nokkra daga

Eins og íbúum er mörgum kunnugt um er vinna hafin við gerð hringtorgs á gatnamótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar, nálægt hitaveitutönkunum.

Loka þarf gatnamótunum í næstu viku vegna vinnu við hjáleið um framkvæmdasvæðið. Áætlað er að lokunin standi frá hádegi á mánudag til síðdegis á fimmtudag.

Lögð verður klæðning á hjáleiðina en framkvæmdin er háð úrkomu.

Hjáleið verður um Innnesveg milli gatnamóta við Rein og inn á Akranes.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu