Vökudagar
26 október - 5 nóvember
Vökudagar
Hin árlega lista- og menningarhátíð Vökudagar verður haldin á Akranesi 26. október til 5. nóvember næstkomandi. Bæjaryfirvöld á Akranesi bjóða til menningarhátíðarinnar en tilgangur hennar er ekki síst að efla menningarlífið í bænum og lífga um leið upp á skammdegið. Umfang hátíðarinnar hefur aukist ár frá ári og hefur hún notið vaxandi vinsælda meðal bæjarbúa; reyndar hefur hróður hennar borist langt út fyrir bæjarmörkin enda sækir fólk úr nágrannasveitarfélögum og jafnvel víðar að þessa skemmtilegu hátíð.