Sverð og riddaramennska
17. mars kl. 13:00-15:00
Fjölskylda og félagsstarf
Skylmingafélagið Væringjar - Sverð og riddaramennska: Kynning á sögulegum evrópskum skylmingum
Skylmingafélagið Væringjar verður með sýningarbardaga og kynningu á aðeins öðruvísi skylmingum en flestir eru vanir, þ.e með þýskum tveggja handa langsverðum og öðrum evrópskum sverðum. Þessi íþrótt er stunduð um alla Evrópu og Bandaríkin og er þekkt undir nafninu HEMA (e. Historical European Martial Arts), eða sögulegar evrópskar bardagalistir.
Eftir sýninguna geta þeir sem vilja fengið að spreyta sig.