Fara í efni  

Opið hús og jólatilboð

Hlynur mun taka á móti gestum og gangandi í skúrnum góða á Vesturgötu 141, laugardaginn 15. des á milli 14:00 og 16:00.
Hlynur hefur verið að bjóða upp á skemmtileg hópanámskeið og einkatíma fyrir byrjendur og lengra komna í gítarleik, og nú er tækifærið fyrir alla sem hafa áhuga á gítarleik að kíkja í gott spjall og jafnvel prófa að spila aðeins á gítar.

Hlynur verður með kynningu á skemmtilegri heimasíðu þar sem hægt er að finna nánast hvaða lag sem er, íslenskt og erlent, bæði með texta og gítargripum. Kjörið fyrir alla gítarleikara.

Hægt verður að panta tíma í gítarkennslu eða versla gjafabréf í jólapakkann á sérstöku tilboði.

Kíktu við, hvort sem að þú vilt bara spjalla um tónlist eða hefur áhuga á að læra á gítar, þetta verður skemmtilegt! :)

- Hlynur Ben
www.hlynurben.net/gitarkennsla

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00