Fara í efni  

Síðasta sýning !!! Með allt á hreinu - leiksýning NFFA

Leikfélag NFFA og Tónlistarskólinn á Akranesi kynna eina umfangsmestu uppsetningu skólanns til þessa.

Leikritið Með allt á hreinu fjallar um tvær hljómsveitir, Stuðmenn og Gærurnar, og vandræði á milli hljómsveitanna eftir ástardeilur Stinna Stuðs og Hörpu Sjafnar. Hljómsveitirnar keppast hvor við aðra og reyna eftir bestu getu að klekkja hvor á annarri sem gengur misvel. Fjölmargar persónur flækjast svo inn í söguna, svo sem Sigrúna Digra, Valdís barnsmóðir Hafþórs og fleiri. Einnig setja umboðsmenn hljómsveitanna beggja, Frímann og Hekla, mikinn svip á sýninguna. Mikið fjör er í sýningunni og sungið og dansað af fullum krafti. En mun rígurinn á milli Gæranna og Stuðmanna enda? Og hvor hljómsveitin mun ,,meika það”?

Hlökkum til að sjá þig í Bíóhöllinni á Akranesi miðasala á midi.is. miðaverð 2.500 kr.

Fyrstu sýningarnar verða á eftirfarandi tímum:

  • 10. mars kl. 20:00
  • 11. mars kl. 20:00
  • 12. mars kl. 20:00
  • 14. mars kl. 20:00
  • 15. mars kl. 19:00
  • 17. mars kl. 16:00 og 20:00
  • 18. mars kl. 18:00
  • 23. mars kl. 20:00......síðasta sýning og er þetta singalong sýning þar sem áhorfendur geta sungið með.
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00