Fara í efni  

Grafík á Írskum vetrardögum

Hljómsveitin Grafík fagnaði með tónleikum í lok síðasta árs að 30 ár voru liðin frá útgáfu plötunnar Leyndarmál. Það þóttist takast það vel að eftirspurn hefur verið síðan að leikið sé meira og víðar. Nú er það Írskir vetrardagar á Akranesi þar sem stórtónleikar verða fimmtudagskvöldið 15. mars.

Þessi goðsagnakennda hljómsveit starfaði við miklar vinsældir og gott orðspor á níunda áratug síðustu aldar. Hljómplatan Leyndarmál var fjórða plata sveitarinnar en sú fyrsta og eina sem hljómsveitin gerði með Andreu Gylfadóttur eftir að hún tók við keflinu af Helga Björnssyni. Platan fékk mjög góða dóma og viðtökur og má þá sérstaklega nefna lögin Presley og Prinsessan.

Miðasala á midi.is 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00