Akranes í augum barna - Barnamenningarbók Akraness 2026
Viðburður
Hvenær
3. október kl. 11:00-14:00
Hvar
Bókasafn Akraness
Hvernig sjá börnin Akranes?
Hvar finnst börnunum skemmtilegast að vera og hvað myndu þau vilja sjá í bænum sínum?
Í opinni vinnustöð á Bókasafninu fá börn að teikna og/eða skrifa um Akranes með sínum eigin augum.
Börnin geta valið úr þremur skemmtilegum verkefnum og mega gera fleiri en eitt ef þau vilja.
Verkunum verður safnað saman í Barnamenningarbók Akraness 2026, sem varðveitir hugmyndir og sýn barnanna á bæinn sinn. Stefnt er að því að afhenda bókasafninu prentað eintak til varðveislu.
Öll börn velkomin! ❤️
Umsjón: Margrét Hlíf Óskarsdóttir
Í samstarfi við Bókasafn Akraneskaupstaðar.
Viðburðurinn er hluti af BARNÓ! – Barnamenningarhátíð Vesturlands 2026.





