ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Þjónusta :: Umhverfi og samgöngur :: Strætisvagn Akraness
Prenta vefsíðu

Akstur strætisvagns á Akranesi

Sími Strætisvagna Akraness: 433 8800 (Hópferðabílar Reynis Jóhannssonar)

 

Sjá leiðarlýsingu (tímatöflu)

  

Hinn 1. janúar 2010 tóku gildi breytingar á akstri strætisvagnsins sem ekur innanbæjar á Akranesi, bæði hvað varðar akstursleið og daglegan ferðafjölda. Á meðfylgjandi yfirlitskorti er nýja akstursleiðin sýnd ásamt tölusettum biðstöðvum og einnig fylgir með tímatafla fyrir nýju leiðina. Til glöggvunar hefur akstursleiðinni verið skipt upp í þrjá mislita leiðahluta og tímatafla lituð til samræmis við það. 

Daglegum ferðum strætisvagnsins fækkar frá því sem verið hefur en frá og með áramótum mun

hann aka 15 ferðir á dag. Vagninn mun ganga 5 daga vikunnar (mánudaga – föstudaga) en enginn akstur verður um helgar. Ekkert gjald verður tekið af farþegum frekar en verið hefur enda hefur það sýnt sig að notkun bæjarbúa á þjónustu vagnsins hefur stóraukist síðan gjaldtaka var felld niður. Allt bendir til þess að farþegafjöldi með strætisvagninum á árinu 2009 losi 100.000 farþega eða að hver bæjarbúi hafi að meðaltali notað vagninn rúmlega 15 sinnum á árinu. 

Á sama tíma verður einnig önnur breyting en þá mun Skagaverk ehf sem annast hefur rekstur strætisvagnsins frá því í mars 2003 láta af því verkefni og Hópferðabílar Reynis Jóhannssonar ehf taka við. Til að byrja með mun nýr rekstraraðili nota hefðbundinn hópferðabíl við aksturinn en væntanlega verður nýr vagn kominn í rekstur í apríl n.k. Íbúar eru beðnir velvirðingar á hugsanlegum óþægindum sem þetta getur haft í för með sér en rekstraraðilinn mun leitast við eins og unnt er að koma til móts við þarfir þeirra sem þetta kann að valda vandræðum. 


 

Tímatafla Strætó bs. Mosfellsbær - Kjalarnes - Akranes.

Allar nánari upplýsingar um gjaldskrá og leiðakerfi Strætó er að finna á upplýsingavef Strætó bs., www.straeto.is og http://akranes.is/thjonusta/umhverfi-og-samgongur/leidakerfi-straeto-bs/

 

 

 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008